Hoppa yfir valmynd
26. janúar 2011 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Sex sóttu um starf forstjóra Mannvirkjastofnunar

Sex sóttu um starf forstjóra Mannvirkjastofnunar en umsóknarfrestur rann út 21. janúar síðastliðinn. Eftirtaldir sóttu um starfið:

  • Dr. Bjarki Jóhannesson, verkfræðingur, arkitekt og skipulagsfræðingur.
  • Björn Helgason, verkfræðingur.
  • Dr. Björn Karlsson, verkfræðingur.
  • Friðrik Ólafsson, verkfræðingur.
  • Jónas Ingólfur Gunnarsson, söluráðgjafi.
  • Vífill Björnsson, byggingafræðingur.

Umhverfisráðuneytið hefur ákveðið að skipa þriggja manna nefnd til að fara yfir og leggja mat á umsóknirnar. Nefndina skipa Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, dósent við Háskóla Íslands, Guðrún Ólafsdóttir, verkfræðingur hjá Verkís og Ingibjörg Ásgeirsdóttir, forstjóri Námsgagnastofnunar.

Ný lög um mannvirki komu til framkvæmda 1. janúar á þessu ári. Við gildistöku laganna var Mannvirkjastofnun sett á fót sem tók við málefnum Brunamálastofnunar auk verkefna er varða byggingarmál. Samhliða því var Brunamálastofnun lögð niður.

Markmið nýrra laga um mannvirki er að auka öryggi og gæði mannvirkja, efla neytendavernd, bæta skilvirkni í stjórnsýslu mannvirkjamála og tryggja faglega yfirsýn í málaflokknum og samræma byggingareftirlit um land allt. Mannvirkjastofnun hefur einnig það hlutverk að hafa eftirlit með og vinna að samræmingu brunavarna í landinu, stuðla að samvinnu þeirra sem starfa að brunavörnum og reka Brunamálaskólann.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum