Hoppa yfir valmynd
11. janúar 2011 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Boðað til verkefnasamkeppni um umhverfismál meðal grunnskólabarna

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra útnefnir nemendur Hvolsskóla varðliða umhverfisins.
Varðliðar á degi umhverfisins 2010

Boðað er til árlegrar verkefnasamkeppni um umhverfismál á meðal grunnskólabarna í 5. til 10. bekk. Keppnin kallast Varðliðar umhverfisins og það eru umhverfisráðuneytið, Landvernd og Náttúruskóli Reykjavíkur sem standa að henni. Markmið keppninnar er að hvetja ungt fólk til góðra verka í umhverfisvernd, vekja athygli á sýn ungs fólks á umhverfismál og kalla eftir leiðsögn yngri kynslóðarinnar á því sviði.

Skilafrestur verkefna er til 31. mars 2011 og þau skal senda umhverfisráðuneytinu, Skuggasundi 1, 150 Reykjavík, merkt ,,Varðliðar umhverfisins”. Dómnefnd skipuð fulltrúum umhverfisráðuneytisins, Landverndar og Náttúruskóla Reykjavíkur velur úr innsendum verkefnum og tilnefnir Varðliða umhverfisins. Allir þátttakendur fá viðurkenningarskjal og valin verkefni verða verðlaunuð af umhverfisráðherra á Degi umhverfisins þann 25. apríl 2011.

Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um keppnina hér á heimasíðu umhverfisráðuneytisins.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum