Hoppa yfir valmynd
20. desember 2010 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Nýtt húsnæði Náttúrufræðistofnunar Íslands

Hús Náttúrufræðistofnunar Íslands í Urriðaholti í Garðabæ
Náttúrufræðistofnun

Náttúrufræðistofnun Íslands er flutt í nýtt húsnæði í Garðabæ sem er sérstaklega hannað fyrir starfsemi stofnunarinnar. Í húsinu er nýjustu tækni beitt til að tryggja varðveislu náttúrugripa, sem margir eru mjög verðmætir og sjaldgæfir.

Nýtt húsnæði Náttúrufræðistofnunar gjörbreytir öllu starfsumhverfi stofnunarinnar og bætir mjög aðstöðu til rannsókna, fræðslu og varðveislu gripa. Miklu skiptir að stór og verðmæt gripasöfn stofnunarinnar komast í viðunandi húsnæði.

Hús Náttúrufræðistofnunar er eitt af fyrstu húsum hér á landi til að fá alþjóðlegu BREEAM umhverfisvottunina. Vottunin tekur til þeirra þátta byggingarinnar sem lágmarka neivkæð umhverfisáhrif hennar og stuðla að sjálfbærni.

Ávarp Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra við vígslu hússins.

Sjá nánar á heimasíðu Náttúrufræðistofnunar.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum