Hoppa yfir valmynd
16. nóvember 2010 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Eftirlit lögreglu og Landhelgisgæslu með rjúpnaveiðum

Eftirlit lögreglu og Landhelgisgæslu með rjúpnaveiði.
Eftirlit með rjúpnaveiði

Lögregla og Landhelgisgæslan hafa stundað virkt eftirlit með rjúpnaveiði á þessu veiðitímabili og hefur lögreglan skráð fjórtán meint lögbrot í tengslum við veiðarnar. Flest þeirra tengjast brotum á lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum en lögregla hefur einnig haft afskipti af veiðimönnum vegna aksturs utan vega og brota á vopnalögum.

Um liðna helgi fór Landhelgisgæslan í rjúpnaveiðieftirlit á þyrlu ásamt lögreglunni í Ólafsvík. Við eftirlit helgarinnar var lent hjá veiðimönnum á Snæfellsnesi, farið yfir skotvopnaleyfi þeirra, byssur og skotfæri. Einn maður var án skotvopnaleyfis og var byssa hans gerð upptæk ásamt skotum.

Veiðimenn eru hvattir til hófsamra veiða en rjúpnaveiðar eru eingöngu heimilar föstudaga, laugardaga og sunnudaga, frá og með 29.október til og með 5.desember.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum