Hoppa yfir valmynd
16. september 2010 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Samgönguvika hófst í dag

Samgönguvika 2010
Samgönguvika 2012

Samgönguvika hófst í dag og af því tilefni hefur verið opnuð heimasíða tileinkuð vikunni. Síðan er unnin í samvinnu umhverfisráðuneytisins og þeirra sveitarfélaga sem taka þátt í Samgönguviku að þessu sinni. Á síðunni er til dæmis hægt að skoða dagskrá Samgönguviku 16.-22. september, lesa fréttir af viðburðum vikunnar og taka þátt í getraun þar sem hægt er að vinna reiðhjól frá Erninum, ársmiða í Strætó og sundkort.

Fyrsti dagur Samgönguviku er í dag og í Reykjavík verður vikan formlega sett í Fellaskóla kl. 14:00. Karl Sigurðsson, formaður umhverfis- og samgönguráðs Reykjavíkur, mun setja vikuna og afhenda samgöngublómið. Boðið verður upp á skemmtiatriði og veitingar. Á Seltjarnarnesi mun Varðan, slysavarnardeild kvenna, efna til umferðareftirlits við Mýrarhúsaskóla og gefa nemendum endurskynsmerki.

Samgönguvika er evrópskt átak um bættar samgöngur í borgum og bæjum. Markmið vikunnar er að hvetja fólk til umhugsunar um eigin ferðavenjur og virkja það til að nota almenningssamgöngur, hjóla eða ganga. Einnig er vikunni ætlað að hvetja stjórnvöld til að stuðla að notkun þessara samgöngumáta og fjárfesta í nauðsynlegum aðbúnaði.

Þema Samgönguviku í ár er Fjölbreyttar ferðavenjur – Bætt lífsgæði. Fleiri en 2.000 evrópsk sveitarfélög taka þátt í Samgönguviku í ár, þar af sjö hér á landi.

Heimasíða Samgönguviku 2010.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum