Hoppa yfir valmynd
16. júní 2010 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Verndaráætlun staðfest og Undirheimar Vatnshellis opnaðir

Umhverfisráðherra við opnun Undirheima.
Vatnshellir á Snæfellsnesi

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra staðfesti verndaráætlun þjóðgarðsins Snæfellsjökuls í gær og opnaði um leið Undirheima Vatnshellis.

Vatnshellir

Vatnshellir er í suðurhlíðum Purkhólahrauns. Hellirinn er um 100 metrar að lengd og þar er hátt til lofts og vítt til veggja. Þjóðgarðurinn hefur unnið að því í samstarfi við sjálfboðaliða að bæta aðgengi að hellinum síðastliðinn vetur. Skýli hefur verið byggt yfir opið niður í hellinn og hringstigi lagður niður. Með skýlinu er komið í veg fyrir að snjór safnist fyrir op hellisins og jafnframt gert kleift að loka hellinum en umferð um hann verður aðeins leyfð með leiðsögn. Er það gert til að vernda hellinn sem best og koma í veg fyrir frekari skemmdir á honum. Innst í hellinum er annað jarðfall og er ætlunin að þar verði annar hringstigi niður á neðra gólf hellisins. Einnig er ráðgert að raflýsa hellinn með aðstoð sólarsellu eða vindrafals.

Fjölmargir hafa lagt á sig ómælda sjálfboðavinnu við framkvæmdirnar en hugmyndasmiður verkefnisins er Árni B. Stefánsson hellakönnuður sem ásamt Hjörleifi Stefánssyni arkitekt ýtti verkinu úr vör og kveikti áhuga heimafólks á því. Meðlimir í Lionsklúbbi Nesþinga ásamt fleirum hafa unnið við hellinn en Umhverfisstofnun og Snæfellsbær hafa lagt fjármuni í verkið.

Margir hellar eru í Þjóðgarðinum en Vatnshellir er einn sá aðgengilegasti og þægilegasti til að gera að sýningar- og kennsluhelli. Með því vill þjóðgarðurinn stuðla að því að gestir fái fræðslu um þau verðmæti sem hellar eru og stuðla um leið að verndun þeirra. Eingöngu verður farið í hellinn með leiðsögn landvarða. Fastar ferðir verða á miðvikudögum, laugardögum og sunnudögum klukkan 14:00 og þarf að skrá sig í ferðirnar á Gestastofu þjóðgarðsins í síma 436 6888 eða með tölvupósti á netfang [email protected]. Takmörkuðum fjölda er hleypt niður í hellinn samtímis.

Verndaráætlun

Markmið verndaráætlunar fyrir þjóðgarðinn Snæfellsjökul sem umhverfisráðherra undirritaði er að tryggja vernd náttúru- og menningarminja. Í þessu felst meðal annars að náttúra þjóðgarðsins fái að þróast eftir eigin lögmálum eins og kostur er um leið og almenningi er gert kleift að njóta þess sem svæðið hefur upp á að bjóða. Fleiri ferðamönnum fylgir aukið álag á náttúruna og eykur það þörfina á skipulagi vegna verndunar innan þjóðgarðsins.

Helstu markmið áætlunarinnar:

  • Kortlagning þjóðgarðsins.
  • Aðstaða fyrir gesti verður bætt.
  • Tryggja þarf að þjóðgarðurinn þoli ágang ferðamanna, svo sem með gerð göngustíga.
  • Fylgst verður með dýra- og plöntulífi, fjölda ferðamanna, ástandi menningarminja og fleira.
  • Rannsóknir innan þjóðgarðsins verði aðgengilegar á veraldarvefnum.
  • Fræðsluefni um þjóðgarðinn fyrir öll skólastig verði samið.
  • Unnið verði að uppbyggingu náttúruskóla

Verndaráætlun fyrir þjóðgarðinn Snæfellsjökul 2010-2020.

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum