Hoppa yfir valmynd
10. maí 2010 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Landmælingar Íslands og Landgræðslan eru fyrirmyndarstofnanir

Landmælingar
Landmælingar Íslands

Landmælingar Íslands urðu í fimmta sæti í vali á stofnun ársins í flokki minni stofnana og einnig ef miðað er við heildarfjölda og hljóta því sæmdarheitið fyrirmyndarstofnun 2010. Landgræðsla ríkisins varð í þriðja sæti í hópi stærri stofnana.

SFR - stéttarfélag í almannaþjónustu stóð nú í fimmta sinn að þessu vali. Könnun var gerð meðal allra starfsmanna stofnunarinnar óháð því í hvaða stéttarfélagi þeir væru. Ljóst er að sú einkunn sem þeir gefa vinnustað sínum er vitnisburður um góðan starfsanda, starfsmannastefnu og stjórnunar Landmælinga Íslands.

Nánar á heimasíðu Landmælinga Íslands.

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum