Hoppa yfir valmynd
5. mars 2010 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Umsagnarferli að hefjast í vinnu við rammaáætlun

Rammaáætlun
Rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma

Niðurstöður faghópa 2. áfanga rammaáætlunar liggja nú fyrir og eru komnar í opið umsagnarferli. Öllum er heimilt að skila inn athugasemdum frá 8. mars til 19. apríl næstkomandi. Upplýsingar um niðurstöðu faghópanna verður að finna á heimasíðunni rammaáætlun.is frá og með 8. mars. Niðurstöður faghópa eru ekki lokaniðurstaða 2. áfanga rammaáætlunar. Að loknu umsagnarferlinu mun verkefnisstjórn nýta niðurstöður faghópanna og hafa umsagnir til hliðsjónar við að setja saman heildarniðurstöður áætlunarinnar og senda þær stjórnvöldum.

Fyrsti kynningarfundur á niðurstöðum faghópanna verður haldinn í Skriðunni (Kennaraháskólanum í Reykjavík) þriðjudaginn 9. mars kl. 14:00. Fundurinn verður sendur beint út á heimasíðu rammaáætlunar, http://www.rammaáætlun.is/. Auk þess verður efnt til kynningarfunda víða um land á næstu vikum. Næstu fundir verða haldnir laugardaginn 13. mars á Selfossi kl. 11:00 og á Kirkjubæjarklaustri kl. 17:00. Aðrir fundir verða auglýstir síðar.

Verkefnisstjórn 2. áfanga rammaáætlunar um vernd og  nýtingu náttúrusvæða með áherslu á vatnsafl og jarðhitasvæði hefur starfað frá haustinu 2007. Markmið rammaáætlunar er að skapa forsendur fyrir sátt um vernd og nýtingu náttúrusvæða. Í áætluninni skal leggja mat á og flokka virkjunarkosti, jafnt vatnsafls og háhita og áhrif þeirra á náttúrufar og menningarminjar, meðal annars með tilliti til orkugetu, hagkvæmni og annars þjóðhagslegs gildis, samhliða því að skilgreina og meta áhrif á hagsmuni allra þeirra sem nýtt geta þessi sömu gæði.

Í ársbyrjun 2008 setti stjórnin á laggirnar fjóra faghópa til að meta mögulega virkjunarkosti og verðmæti þeirra svæða  sem verða fyrir áhrifum af framkvæmdum. Faghóparnir hafa nú lokið störfum og verða niðurstöður þeirra lagðar fram í opnu kynningar- og umsagnarferli sem standa mun í 6 vikur. Umsagnir skal senda inn í tölvupósti á netfangið [email protected] en einnig má senda skriflegar umsagnir á póstfangið: Rammaáætlun, c/o Orkugarður, Grensásvegi 9, 108 Reykjavík. Fyrirspurnir má senda á sama netfang.

Verkefnisstjórn hefur gefið út skýrslu, sem liggja mun frammi á vefsvæði rammaáætlunar, með kynningu á þeim virkjunarkostum og svæðum sem til umfjöllunar eru ásamt lýsingu á starfi, aðferðafræði og niðurstöðum faghópanna sem metið hafa svæðin og virkjunarkosti, hver á sínu sérsviði. Skýrslan er  prentuð í takmörkuðu upplagi og verða prentuð eintök send þeim aðilum er sótt hafa kynningar og/eða samráðsfundi með verkefnisstjórn.  Þeim sem vilja kynna sér  efni skýrslunnar og annað ítarefni  er beint á vefsíðuna rammaáætlun.is. Kynningarefnið verður komið upp á vefsíðuna mánudaginn 8. mars.

Nánari upplýsingar veitir Tómas Þór Tómasson, starfsmaður 2. áfanga rammaáætlunar um vernd og nýtingu náttúrusvæða með áherslu á vatnsafl og jarðhitasvæði

Netfang: [email protected]
Sími: 569-6036/860-8098
Vefsíða:  http://www.rammaaaetlun.is/,

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum