Hoppa yfir valmynd
21. desember 2009 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Aðalskipulag Fljótsdalshéraðs undirritað

Undirritun aðalskipulags Fljótsdalshéraðs
Undirritun aðalskipulags Fljótsdalshéraðs

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra undirritaði í dag nýtt aðalskipulag Fljótsdalshéraðs fyrir árin 2008-2028, sem sveitarfélagið vann í samstarfi við ráðgjafarfyrirtækið Alta. Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs, segir undirbúning aðalskipulagsins hafa tekið langan tíma, enda hefðu lýðræðisleg vinnubrögð verið í hávegum höfð í skipulagsferlinu. Með ríku samráði við íbúa sveitarfélagsins hefði náðst skynsamleg lending í skipulagsmálum, sem vonandi muni tryggja að skipulagið lifi næstu 20 árin.

Svandís Svavarsdóttir fagnaði þessari nálgun sveitarfélagsins, enda væri gott aðalskipulag gífurlega mikilvægt til að þróa samfélag í átt til hagsældar. Í aðalskipulagi væri framtíðarsýn sveitarfélaga mótuð og því væri aðkoma almennings að skipulagsferlinu af hinu góða.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum