Hoppa yfir valmynd
30. nóvember 2009 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Óskað eftir tilnefningum til umhverfisverðlauna

Norðurlandaráð auglýsir eftir tilnefningum til náttúru- og umhverfisverðlauna ráðsins 2010. Þá verða verðlaunin veitt norrænu fyrirtæki, stofnun, fjölmiðli eða einstaklingi, sem hefur verið í fararbroddi og haft áhrif, beint eða óbeint, á fjármálamarkaðinn, fjármögnunariðnaðinn, banka eða ráðgjafa í því augnamiði að vinna að langtímamarkmiðum og samþætta sjálfbærni (náttúru- og umhverfismál og samfélagsábyrgð) í fjármálaumsýslu.

Leitað er eftir tilnefningum um:

  • Þá sem með starfi sínu hafa aukið þekkingu neytenda og viðskiptavina í gegnum fjölmiðlun, með fyrirlestrum, ritun bóka eða á sambærilegan hátt.
  • Frjáls félagasamtök/einstaklinga sem hafa tekið virkan þátt í vinnuhópum (siðfræðiráðum o.s.frv.), stjórnum eða sambærilegu, sem sýnt hafa árangur
  • Umhverfisfyrirtæki, sjóði, banka eða sambærilegt og er metið af óháðum aðila.

Sjá nánar á heimasíðu Norðurlandaráðs.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum