Hoppa yfir valmynd
11. nóvember 2009 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Nýtt kennsluefni um loftslagsbreytingar

Opnun kennsluvefs um loftslagsmál
Í Sjálandsskóla

Nýr kennsluvefur um loftslagsbreytingar var opnaður í Sjálandsskóla í Garðabæ í dag, norræna loftslagsdaginn. Vefurinn er hluti af námsefni um loftslagsbreytingar sem Námsgagnastofnun gefur út, með stuðningi umhverfisráðuneytisins. Efnið er þríþætt: Þemahefti, fræðslumynd og vefsíða. Hægt verður að skoða vefinn á heimasíðu Námsgagnastofnunar, www.nams.is. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra opnaði vefinn.

Þemaheftið CO2 – framtíðin í okkar höndum, sem Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur hefur tekið saman, fjallar um breytingar á loftslagi á jörðinni. Leitast er við að skoða orsakir þeirra út frá sveiflum í veðurfari, náttúruhamförum og afskiptum mannsins og hvaða áhrif loftslagsbreytingar geta haft í framtíðinni. Fjallað er um gróðurhúsaáhrifin á myndrænan hátt og skoðað hvað gert er á alþjóðlegum vettvangi til að reyna að draga úr áhrifum mengunar á jörðinni. Hver opna í bókinni fjallar um afmarkað efni sem gefur kennurum aukna möguleika á því að velja ákveðin viðfangsefni til umfjöllunar.

Fræðslumyndin Gróðurhúsaáhrif – loftslagsbreytingar og hlýnun jarðar, fjallar um veðurfarsbreytingar sem hafa orðið á jörðinni, m.a. með rannsóknum á Suðurskautslandinu. Fjallað er um gróðurhúsaáhrifin og hver ábyrgð mannsins er á auknu magni gróðurhúsalofttegunda í lofthjúpnum. Að lokum er farið yfir afleiðingar hlýnunar á jörðinni, verði ekkert að gert. Þýðandi er Hálfdan Ómar Hálfdanarson og þulur Jóhanna Guðrún Arnardóttir.

Á vefsíðunni CO2 – framtíðin í okkar höndum, verða meðal annars kennsluleiðbeiningar sem Helgi Grímsson skólastjóri tekur saman, krækjur og myndefni, auk verkefna sem hægt er að vinna í tengslum við efni fræðslumyndarinnar. Hana er hægt að nálgast til sýninga á vefsíðunni, auk þess sem hún verður gefin út á DVD.

Ritstjóri verksins er Sigríður Wöhler en grafíska vinnslu og umbrot annaðist PORT hönnun.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum