Hoppa yfir valmynd
21. ágúst 2009 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Aðgerðir til að efla sjálfbærar samgöngur

Kristján Möller samgönguráðherra og Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra
Samgönguráðherra og umhverfisráðherra

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi í morgun að hefja gerð áætlunar um sjálfbærar samgöngur með það að markmiði að draga úr þörf fyrir einkabílinn. Áætluninn verður unnin á vegum Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra og Kristjáns Möller samgönguráðherra en auk þess verður haft náið samstarf við fulltrúa fjármálaráðherra vegna breytinga sem lúta t.d. að skatta- og gjaldamálum.

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra segir að mörg verkefni á sviði umhverfismála kalli á skýra framtíðarsýn, nýja hugsun og stundum flóknar breytingar á laga- og reglugerðarumhverfi. Önnur verkefni séu hins vegar einfaldari í framkvæmd og mikilvægt sé að hefja nú þegar undirbúning og framkvæmd slíkra verkefna. Samkvæmt samþykkt ríkisstjórnarinnar er lögð áhersla á að fyrstu aðgerðir komi til framkvæmda fyrir næstu áramót.

Umhverfisráðherra og samgönguráðherra eru sammála um eftirfarandi aðgerðir sem lúta að almenningssamgöngum, hjólreiðum og öðrum aðgerðum til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda:

  • Að auðvelda uppbyggingu hraðvagnakerfis með því að stuðla að aukinni forgangsröðun almannavagna í umferð auk þess sem hugað verði að því að hvetja almenning til að nota almenningssamgöngur.
  • Að hvetja stofnanir og fyrirtæki til að taka upp heildstæða samgöngustefnu. Þannig verði opinber fyrirtæki og stofnanir hvött til að niðurgreiða fargjöld í strætó fyrir starfsmenn sína til að draga úr notkun einkabíls. Einnig verði skoðuð möguleg aðkoma ríkisins að verkefninu ókeypis í strætó.
  • Að styðja við hjólreiðar almennings með því að leggja til breytingar á vörugjöldum á innflutningi á reiðhjólum og vara- og fylgihlutum fyrir þau.
  • Að breyta reglum sem hvetja olíufélög til að blanda bensín með lífetanóli og dísilolíu með lífdísilolíu og takmarka innflutning ökutækja sem losa mikið magn gróðurhúsalofttegunda, takmarka innflutning á bílum sem ekki geta gengið fyrir íblönduðu eldsneyti.
  • Að vinna með fjármálaráðuneyti að því að hraða breytingum á skattlagningu ökutækja og eldsneyti sem taki mið af umhverfissjónarmiðum.
  • Að auka áróður og fræðslu um umhverfisáhrif og kostnað mismunandi samgöngukosta.

Ákvörðun ríkisstjórnarinnar er í samræmi við samstarfsyfirlýsingu hennar þar sem kveðið er á um að unnin verði áætlun um sjálfbærar samgöngur í samvinnu við sveitarfélögin, með það að markmiði að draga úr þörf fyrir einkabílinn. Í slíkri áætlun verði almenningssamgöngur um land allt stórefldar og fólki auðveldað að komast leiðar sinnar gangandi eða á reiðhjóli. Þá verði almenningssamgöngur sjálfsagður hluti samgönguáætlunar.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum