Hoppa yfir valmynd
20. ágúst 2009 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Mikilvægur áfangi í vinnu við að stöðva akstur utan vega

Skilti með fræðslu gegn akstri utan vega.
Hjá Vegagerðinni

Vegagerðin, tryggingafélög og bílaleigur undirrituðu í dag samstarfssamning um gerð og uppsetningu skilta með fræðslu gegn akstri utan vega sem sett verða upp á tíu helstu leiðum inn á hálendi Íslands. Samstarf þetta er árangur af vinnu samráðshóps um fræðslu gegn akstri utan vega sem umhverfisráðherra skipaði í upphafi árs. Skiltin verða sett upp við innkomur á helstu leiðir inn á hálendi landsins. Í fyrsta áfanga á þessu ári verða sett upp 10 skilti, við Kjalveg við Gullfoss og í Blöndudal, við innkomuleiðir á Sprengisand við Hrauneyjar, á Eyjafjarðarleið við Hólsgerði og í Bárðardal ofan við Mýri, fyrir Nyrðra Fjallabak við upphaf Landmannaleiðar við Landveg, fyrir Syðra Fjallabak ofan við Keldur, og í Fljótshlíð neðan Gilsár og við Búland og fyrir leið í Laka við Hringveg.
Áætlað er að halda verkinu áfram á næstu tveimur árum, en alls er gert ráð fyrir að setja upp um 30 skilti af þessari gerð. Nánar er fjallað um verkefnið á heimasíðu Vegagerðarinnar.

Fræðsluefni og eftirlit

Hópinn skipa fulltrúar helstu ríkisstofnana og hagsmunasamtaka sem tengjast málefninu. Samráðshópurinn hefur hist reglulega og unnið að áætlunum og verkefnum sem miða að því að draga úr akstri utan vega. Fyrr í sumar gáfu Umhverfisstofnun og umhverfisráðuneytið út bækling á fjórum tungumálum sem var dreift meðal annars á bílaleigum og algengum ferðamannastöðum. Hálendiseftirlit, samstarf Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, lögreglu, Umhverfisstofnunar og Landhelgisgæslunnar fór af stað í sumar. Þá hefur Umhverfisstofnun búið til sérstök eyðublöð og leiðbeiningar fyrir t.d. landverði til að skrá og tilkynna akstur utan vega til lögreglu og Umhverfisstofnunar. Einnig hefur boðskap gegn akstri utan vega verið komið á framfæri með fræðsluefni (spjald á stýri bifreiða) sem fylgir flestum bílaleigubílum. Loks hefur upplýsingum um akstur utan vega verið komið á framfæri á vefsvæði Umhverfisstofnunar.

Fjölskipaður samráðshópur

Samráðshópurinn mun starfa áfram að fræðslu gegn akstri utan vega og hafa frumkvæði að fleiri verkefnum, ásamt því að fylgjast með og meta árangur þeirra verkefna sem eru þegar hafin. Umhverfisstofnun heldur utan um starf samráðshópsins en þátttakendur í hópnum eru: Umhverfisráðuneytið, Ferðaklúbburinn 4x4, Ferða og útvistarfélagið Slóðavinir, Forvarnarhúsið, Landgræðsla ríkisins, Landhelgisgæsla Íslands, Landvarðafélag Íslands, Landvernd, Ríkislögreglustjóri, Mótorhjóla og snjósleðaíþróttasamband Íslands, Ökukennarafélag Íslands, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök útivistarfélaga, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Umhverfisstofnun, Umferðarstofa og Vegagerðin.

Vaxandi vandamál

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra álítur akstur utan vega vaxandi vandamál hér á landi, m.a. vegna mikillar fjölgunar torfærutækja undanfarin ár. Miklar skemmdir hafa verið unnar á náttúru landsins með akstri utan vega, t.d. á Reykjanesi, í Snæfelljökulsþjóðgarði og í Friðlandi að Fjallabaki. Hægt er að skoða myndir af skemmdum í náttúru Íslands af völdum aksturs utan vega á heimasíðu Umhverfisstofnunar.

Átak á Reykjanesi

Í kjölfar vettvangsferðar í Reykjanesfólkvang í sumar skipaði umhverfisráðherra aðgerðateymi til að koma á átaki til að verja viðkvæma náttúru Reykjanesfólkvangs fyrir skemmdum af völdum aksturs utan vega. Yfirskrift átaksins er Á réttri leið á Reykjanesi og mun Umhverfisstofnun leiða starf teymisins. Aðgerðateymið á að efla og samræma störf ýmissa aðila en í teyminu sitja fulltrúar frá umhverfisráðuneytinu, Reykjanesfólkvangi, Grindavíkurbæ, Sveitarfélaginu Vogum, lögreglunni á Suðurnesjum, Umhverfisstofnun og Landgræðslunni. Teyminu er m.a. ætlað að koma á samráði við hagsmunafélög, lagfæra jarðvegsskemmdir eftir akstur utan vega og sjá um lokun slóða sem óheimilt er að aka. Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra segist vona að átakið reynist árangursríkt og að það geti orðið fyrirmynd svipaðra átaksverkefna víðar um land.

Vegir á hálendi skilgreindir

Jafnframt þessu vinnur umhverfisráðuneytið að því í samvinnu við Vegagerðina, Landmælingar, Umhverfisstofnun og viðkomandi sveitarfélög að skilgreina vegi á hálendi Íslands með það að markmiði að eyða óvissu um hvaða slóða megi aka og hvaða slóðar hafi verið myndaðir í óleyfi.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum