Hoppa yfir valmynd
25. maí 2009 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Hafdís Gísladóttir ráðin aðstoðarmaður umhverfisráðherra

Hafdís Gísladóttir
Hafdís Gísladóttir

Hafdís Gísladóttir, verkefnastjóri hjá Umboðsmanni barna, hefur verið ráðin aðstoðarmaður Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra.

Hafdís er með meistarapróf í opinberri stjórnsýslu frá félagsvísindadeild Háskóla Íslands, er menntaður leikskólakennari og nam sérkennslu á sviði heyrnarlausra og heyrnarskertra barna.

Hafdís hefur m.a. starfað sem framkvæmdastjóri Félags heyrnarlausra, framkvæmdastjóri Þjónustumiðstöðvar Miðborgar og Hlíða og framkvæmdastjóri Öryrkjabandalags Íslands. Hún hefur starfað sem verkefnastjóri hjá Umboðsmanni barna frá 1. ágúst 2008.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum