Hoppa yfir valmynd
21. febrúar 2008 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Ísland í framvarðasveit Sameinuðu þjóðanna í kolefnisjöfnun

Frá fundi umhverfisráðherra í Mónakó. Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra, Erik Solheim, umhverfisráðherra Noregs og Achim Steiner, framkvæmdasjóri Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna
Átaki UNEP um kolefnishlutleysi var hleypt af stokkunum í dag

Ísland er eitt af fjórum ríkjum sem taka þátt í átaki á vegum Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNEP) um að stefna að kolefnishlutleysi. Átakinu var hleypt af stokkunum á ráðherrafundi UNEP í Mónakó í dag. Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra sagði við það tækifæri að þótt loftslagsbreytingar væru alvarleg ógn væri mikilvægt að ganga bjartsýn til verka við lausn á vandanum, sem kallaði á nýsköpun og hreinni tækni.

Átakinu var hrundið af stað í dag á ráðherrafundi UNEP í Mónakó, en auk Íslands eru stofnríki þess Costa Rica, Noregur og Nýja-Sjáland. Einnig taka þátt í því fjórar borgir og fimm fyrirtæki, sem stefna að því að verða kolefnishlutlaus. Tilgangur átaksins er að vekja athygli á dæmum um góðar lausnir á sviði loftslagsmála og efla metnað hjá ríkjum, fyrirtækjum og öðrum til að ,,afkola" starfsemi sína. Með ,,afkolun" og ,,kolefnishlutleysi" er átt við að starfsemi hafi ekki í för með sér nettólosun á koltvísýringi og öðrum gróðurhúsalofttegundum, sem valda hlýnun jarðar og loftslagsbreytingum.

Átakið er sýnilegt á netinu, þar sem því er ætlað að safna saman upplýsingum um aðila sem stefna í átt til kolefnishlutleysis. Auk ríkja, borga og fyrirtækja mun alþjóðasamtökum, félagasamtökum og jafnvel einstaklingum standa til boða að skrá sig í átakið í framtíðinni.

Umhverfisráðherra sagði í ávarpi sínu í upphafi átaksins að Ísland teldi sig eiga heima í framvarðasveit ríkja í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Að hluta til stafaði það af árangri sem náðst hefði nú þegar, þar sem öll rafmagnsframleiðsla og húshitun væri með endurnýjanlegum orkugjöfum. Árangur hefði náðst á fleiri sviðum, en mikið verk væri þó framundan við að afkola alla þætti samfélagsins, til dæmis væri mikil losun frá samgöngum. Það væri spennandi verk að halda áfram á leiðinni til kolefnishlutleysis; Ísland gæti lært margt af öðrum, á sama hátt og Ísland reyndi af miðla af reynslu sinni, eins og á sviði jarðhitanýtingar.

Achim Steiner, framkvæmdastjóri UNEP, sagði í dag að kolefnishlutleysi væri hugmynd sem hrinda ætti í veruleika nú, til að bregðast við loftslagsvánni en einnig til að skapa efnahagsleg tækifæri sem myndu verða til hjá þeim sem feta braut grænnar efnahagsstarfsemi. Átakinu væri ætlað að styðja við alþjóðlegar samningaviðræður í kjölfar Balí-fundarins um loftslagsmál í lok síðasta árs og byggja upp trú á að hægt væri að ná árangri með áþreifanlegum dæmum um afkolun. Frekari upplýsingar um átakið má sjá á heimasíðu þess.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum