Hoppa yfir valmynd
25. september 2007 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Ráðstefna aðalritara Sþ um loftslagsbreytingar

Hjálmar W. Hannesson, fastafulltrúi Íslands hjá Sþ, Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra.
Í höfuðstöðvum Sþ í New York

Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra sótti í gær ráðstefnu í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York um loftslagsbreytingar sem haldin var á vegum aðalritara Sþ, Ban Ki-moon. Ráðstefnuna sóttu yfir 150 þjóðarleiðtogar og ráðherrar.

Við þetta tækifæri átti umhverfisráðherra fund með umhverfisráðherrum Írlands, Ungverjalands, Rúmeníu og Bretlands þar sem rætt var um stöðu loftslagsmála. Umhverfisráðherra sótti einnig hádegisfund, sem haldinn er að frumkvæði Kenýa, Indónesíu, Póllands og Danmerkur, undir yfirskriftinni "Global Voices on Climate Change". Þessi ríki eru gestgjafaríki á aðildarríkjaþingi loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna árin 2006-2009. Umhverfisráðherra lagði áherslu á það í viðræðunum að áfram yrði unnið að loftslagsmálum á vettvangi Sameinuðu þjóðanna því engin önnur samtök eða bandalög hefðu sama pólitíska vægi og Sþ.

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra flutti ræðu á ráðstefnunni. Hún lagði áherlsu á nauðsyn þess að alþjóðlegir sáttmálar um tölusett markmið og aðgerðaáætlun gegn loftslagsbreytingum yrðu mótaðir á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Þótt fagna bæri nýrri viðleitni stærstu iðnríkja á þessu sviði væri mikilvægt að samningar yrðu gegnsæir og opnir öll ríkjum heims, sérstaklega þeim sem fyrirséð væri að harðast yrðu úti af völdum loftslagsbreytinga. Hét utanríkisráðherra fullum pólitískum stuðningi Íslands við alþjóðlegar aðgerðir, þ. á m. á Balí-ráðstefnunni í desember og á væntanlegum þjóðarleiðtogafundi í Kaupmannahöfn 2009. Byggja bæri á því sem vel hefði reynst í Kyoto-samningnum s.s. þeim takmörkum og tímamörkum sem þar hefðu verið sett en jafnframt koma til móts við þróunarríki og leita nýrra lausna í samstarfi við atvinnulíf.

Nánari upplýsingar um loftslagsþingið má finna á heimasíðu Sþ.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum