Verkefni umhverfisráðuneytis
Umhverfisráðuneytið var stofnað árið 1990. Með stofnun þess voru stjórnvöldum sköpuð skilyrði til að móta og framfylgja heildstæðri stefnu í umhverfismálum. Markmiðið með ráðuneyti fyrir umhverfismál er að styrkja almenna umhverfisvernd, efla samvinnu ráðuneyta og stofnana er vinna að þessum málaflokki og stuðla að virkri þátttöku Íslendinga í alþjóðlegu samstarfi á sviði umhverfismála.
Umhverfisráðuneytið starfar samkvæmt reglugerð um Stjórnarráð Íslands. Ráðuneytið fer með mál er varða náttúruvernd, útivist og aðstöðu til náttúruskoðunar, dýravernd, eftirlit með og stjórnun á stofnstærð villtra dýra, umhverfisrannsóknir og -vöktun, landmælingar og kortagerð, skipulags- og byggingarmál, varnir gegn mengun, eiturefnaeftirlit og fræðslu og upplýsingastarfsemi á sviði umhverfismála.
Þá fer ráðuneytið með friðunar- og uppgræðsluaðgerðir á sviði gróður- og skógræktar. Umhverfisráðuneytið fer með alþjóðleg samskipti í umhverfismálum í samvinnu við utanríkisráðuneytið.
Ráðuneytinu er enn fremur ætlað að samræma opinberar aðgerðir í umhverfismálum, þar á meðal þær sem snerta starfssvið annarra ráðuneyta, einstakra stofnana og sveitarfélaga.
