Varðliðar umhverfisins
Varðliðar umhverfisins
Boðað er til verkefnasamkeppni um umhverfismál á meðal grunnskólabarna í 5. til 10. bekk. Keppnin kallast Varðliðar umhverfisins og var haldin í fyrsta skipti vorið 2007. Það eru umhverfisráðuneytið, Landvernd og Náttúruskóli Reykjavíkur sem standa að keppninni.
Skilafrestur
Skilafrestur verkefna er til 29. mars 2012 og þau skal senda umhverfisráðuneytinu, Skuggasundi 1, 150 Reykjavík, merkt ,,Varðliðar umhverfisins”. Dómnefnd skipuð fulltrúum umhverfisráðuneytisins, Landverndar og Náttúruskóla Reykjavíkur velur úr innsendum verkefnum og tilnefnir Varðliða umhverfisins. Allir þátttakendur fá viðurkenningarskjal og valin verkefni verða verðlaunuð af umhverfisráðherra á Degi umhverfisins þann 25. apríl 2012.
Markmið
Markmið keppninnar er að hvetja ungt fólk til góðra verka í umhverfisvernd, vekja athygli á sýn ungs fólks á umhverfismál og kalla eftir leiðsögn yngri kynslóðarinnar á því sviði.
Verkefnin
Verkefnin mega vera af fjölbreyttum toga, t.d. ritgerðir, ljósmyndir, ljóð, veggspjöld, bæklingar, myndbönd og hljóðverk. Í stuttu máli er fólki frjálst að skila inn verkefnum í hvaða formi sem er svo lengi sem þau eru sannarlega unnin af nemendunum sjálfum og umfjöllunarefni þeirra eru umhverfismál í víðum skilningi þess orðs. Þátttakendur geta í verkefnum sínum fjallað um umhverfismál í sínu nánasta umhverfi, á landsvísu eða heimsvísu. Umfjöllunarefnið getur t.d. verið loftslagsbreytingar, röskun eða verndun búsvæða, jarðvegseyðing, endurheimt vistkerfa, verndun náttúruauðlinda, endurvinnsla og endurnýting úrgangs.
Athygli er vakin á því að verkefnin þurfa ekki að vera unnin sérstaklega fyrir samkeppnina heldur er vonast til að hún geti gefið nemendum og kennurum tækifæri til að koma á framfæri verkefnum sem þegar hafa verið unnin í skólum.
Tengiliðir
Hægt er að óska eftir nánari upplýsingum um keppnina með tölvupósti til:
Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur – bergthora.njala@umhverfisraduneyti.is
Helenu Óladóttur – helena.oladottir@reykjavik.is
Orra Páls Jóhannssonar – orripall@landvernd.is
Varðliðar umhverfisins 2011
Á Degi umhverfisins 2011 voru nemendur í umhverfisnefnd Þjórsárskóla í Skeiða- og Gnúpverjahreppi útnefndir Varðliðar umhverfisins fyrir útgáfu ruslabæklings fyrir börn á öllum aldri. Bæklingnum var dreift á öll heimili og sumarbústaði í hreppnum. Markmið nemendanna með verkefninu var að leggja sitt af mörkum til að auka og stuðla að skilningi á breyttu fyrirkomulagi sorphirðu í sveitarfélaginu sem ætlað er að auka endurvinnslu úrgangs. Þess má geta að sveitarstjórn falaðist sérstaklega eftir samvinnu við skólann vegna sérþekkingu hans á málinu.
Varðliðar umhverfisins 2010
Á Degi umhverfisins 2010 voru nemendur Hvolsskóla útnefndir varðliðar umhverfisins fyrir faglega skýrslu um umhverfisáhrif vegna framkvæmda við Landeyjahöfn. Í skýrslunni leitast nemendur við að varpa ljósi á umfang framkvæmdanna og áhrif þeirra á umhverfið með því að flétta viðfangsefnið inn í stærðfræði, eðlisfræði og náttúrufræði. Reiknaður var út umhverfiskostnaður af framkvæmdum í Landeyjahöfn, m.a. fundin út koltvísýringsmengun af flutningum grjóts í brimvarnargarð. Einnig voru borin saman þau áhrif sem eru af siglingum til Þorlákshafnar annars vegar og til Landeyjahafnar hins vegar með því að reikna út kostnað vegna olíunotkunar og magn koltvísýrings sem losnar út í andrúmsloftið á þessum tveimur siglingaleiðum. Að lokum veltu nemendur fyrir sér ávinningi landgræðslu með tilliti til bindingar koltvísýrings til að draga úr umhverfisáhrifum framkvæmdanna.
Varðliðar umhverfisins 2009
Nemendur í Grunnskóla Siglufjarðar fæddir árið 1997 hlutu útnefninguna fyrir verkefniðJaðrakan.Nemendurnir fylgdust m.a. með ferðum merktra jaðrakana frá Bretlandi til Íslands og tóku þátt í merkingum fugla. Einnig létu nemendurnir sig búsvæði fuglanna varða, s.s. með ályktun um verndun þess. Verkefnið er samstarfsverkefni Grunnskóla Siglufjarðar og grunnskólabarna í bænum Cobh í Cork á Írlandi og nemendurnir hafa því skrifast á við félaga sína á Írlandi, fengið gögn þaðan og miðlað upplýsingum um stöðu verkefnisins í þeirra eigin skóla.
Haustið 2006 var sett á laggirnar reiðhjólaverkstæði við Snælandsskóla sem kallast Hjólarí. Nemendur í Hjólaríinu læra viðgerðir á reiðhjólum, þar eru ónothæf hjól nýtt sem varahlutir í önnur og afrakstur þess er fjöldi fullbúinna hjóla sem skólinn hefur m.a. fært Rauða krossinum að gjöf. Skólinn hefur í gegnum Hjólaríið orðið sér úti um reiðhjól fyrir bekkjardeildir til að nýta í styttri vettvangs- og skemmtiferðir, nemendur sem ekki eiga reiðhjól geta eignast ódýr hjól auk þess sem kennurum stendur til boða að kaupa hjól. Markmið verkefnisins er m.a. að endurnýta það sem mögulegt er og að nemendur læri að meta reiðhjól sem farartæki.
Varðliðar umhverfisins 2008
Karen Hjartardóttir, nemandi í 10. bekk Lýsuhólsskóla á Snæfellsnesi, bjó til Grænfánaspilið. Spilið leiðir fólk í gegnum ýmis umhverfisverkefni á skemmtilegan hátt og markmiðið er að flagga Grænfánanum, alþjóðlegri umhverfisviðurkenningu skóla.
Verkefni Fossvogsskóla fjallaði um veggjakrot og umgengni í skólahverfinu og var unnið af nemendum í 5., 6. og 7. bekk Fossvogsskóla. Í verkefninu var tekið á umgengismálum í hverfinu með aðstoð nemenda. Nemendur kortlögðu veggjakrot í hverfinu, skemmdarverk alls konar og slæma umgengni. Reiknaður var út kostnaður við að mála yfir veggjakrot í hverfinu og það tjón sem hverfið verður fyrir sökum þessa. Unnin voru póstkort úr endurunnu efni og á þau skrifuð ýmis konar slagorð tengd góðri umgengni við náttúruna og nánasta umhverfi. Póstkortin voru svo borin út til íbúa í skólahverfinu.
Varðliðar umhverfisins 2007
Árið 2007 voru fjórir hópar útnefndir varðliðar umhverfisins.
Nemendur í bekk 53 í Hólabrekkuskóla söfnuðu ruslpósti heima hjá sér í fjórar vikur og komu með í skólann. Þeir margfölduðu svo meðaltal þess sem barst þeim með fjölda heimila á Íslandi. Nemendurnir komust m.a. að því að ruslpóstur sem berst inn á heimili Íslendinga á ári er nærri því jafn mikill að rúmmáli og blokk í nágrenni skólans og u.þ.b. jafn þungur og 14 strætisvagnar. Krakkarnir kynntu verkefnið á Umhverfisþingi 2007 fyrir framan 350 áhorfendur.
Nemendur í Grunnskóla Tálknafjarðar bjuggu til skilti sem voru sett upp við skólann og víða um bæinn. Nemendur sömdu í sameiningu hentug slagorð á spjöldin. Þá var gerður umhverfissáttmáli milli nemenda og starfsfólks skólans og íbúa Tálknafjarðar. Sáttmálinn var settur á tvö spjöld og íbúar rituðu nöfn sín á spjöldin sem síðan voru hengd upp á hreppsskrifstofunni og í skólanum.
Nemendur í Álftamýrarskóla gerðu viðhorfskönnun í Kringlunni. Í könnuninni var m.a. spurt hvort fólk flokki rusl, hvort það hendi rusli á víðavangi og hvort það væri nægilega mikið af ruslatunnum á götum borgarinnar. Síðara verkefnið hét Við eigum aðeins eina jörð. Í því var fjallað um hvað einstaklingurinn getur gert til að bæta umhverfið, m.a. með bættum innkaupum, endurvinnslu og endurnýtingu.
Nemendur í stafrænu ljósmyndavali 10. bekkjar í Foldaskóla hönnuðu veggspjöld til að vekja fólk til umhugsunar um umhverfið.
Nemendur Lýsuhólsskóla fengur viðurkenninguna fyrir vinnu að gerð göngustígs í Kambsskarði og fyrir gerð Stubbalækjarvirkjunar. Markmið þess verkefnis var nýting endurnýjanlegrar orku í umhverfi skólans og lífræn ræktun í gróðurhúsi og matjurtagarði.
