Beint í leiðarkerfi vefsins.
Ríkisstjórn Íslands hefur að tillögu Þórunnar Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra samþykkt stefnumörkun Íslands um framkvæmd Samningsins um líffræðilega fjölbreytni. Með gerð stefnumörkunarinnar er unnið að því að innleiða markmið samningsins í íslenska stjórnsýslu og er henni ætlað að vera heildarrammi um stefnumótun stjórnvalda sem lýtur að verndun og sjálfbærri nýtingu líffræðilegrar fjölbreytni landsins.
Lesa meiraVísindanefnd um loftslagsbreytingar hefur skilað Þórunn Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra skýrslu um áhrif hnattrænna loftslagsbreytinga á Íslandi. Megin niðurstaða vísindanefndarinnar er að áhrifa loftslagsbreytinga gæti þegar í náttúru landsins og að fyrirsjáanlegar loftslagsbreytingar munu einnig hafa veruleg áhrif á náttúrufar hér á landi.
Lesa meira
Umhverfisráðuneytið og Landvernd hafa endurútgefið fræðsluritið Skref fyrir skref. Ritinu er ætlað að hvetja fólk til dáða í umhverfismálum og auðvelda því að tileinka sér umhverfisvænni lífshætti. Ritið var gefið út á liðnu ári í 5.000 eintökum og hefur notið mikilla vinsælda. Þess vegna var ráðist í að endurútgefa það nú á Degi umhverfisins, 25. apríl.
Lesa meira