Umhverfisþing
Hvítbók

Hvítbók um náttúruvernd á Íslandi

Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, hefur kynnt í ríkisstjórn hvítbók sem nefnd um endurskoðun náttúruverndarlaga hefur unnið en í henni felst heildarúttekt á lagaumhverfi náttúruverndar á Íslandi.

Þetta er í fyrsta sinn sem slík hvítbók er unnin því skyni að leggja grunn að smíði nýrrar löggjafar hér á landi en það er í samræmi við vinnubrögð sem tíðkast á Norðurlöndum. Nefndina sem vann hvítbókina skipuðu sérfræðingar á sviði náttúrufræða, stjórnsýslufræða og lögfræði og hafa margir þeirra áratuga reynslu af starfi að náttúruvernd. Lagði nefndin áherslu á að gera grein fyrir nýjum aðferðum og viðhorfum sem rutt hafa sér rúms í náttúruvernd víða um heim og rekja má til ýmissa alþjóðsamninga sem Íslendingar hafa gerst aðilar að. Þá vann nefndin tillögur um hvernig koma megi þessum aðferðum og hugmyndum inn í íslenska löggjöf á grunni núgildandi laga með áherslu á að gæta jafnvægis milli ólíkra hagsmuna.

Meginreglur umhverfisréttar útfærðar

Meðal þess sem nefndin leggur til í hvítbókinni er að gildissvið náttúrverndarlaga er varðar vernd lífríkis hafsins verði skýrt og styrkt og að lög um landgræðslu og skógrækt verði felld í náttúruverndarlög. Áhersla er lögð á að útfæra meginregur umhverfisréttar í nýjum náttúruverndarlögum, svo sem varúðarregluna, reglurnar um fyrirbyggjandi aðgerðir, samþættingu umhverfissjónarmiða og greiðsluregluna. Þá er lagt til að lögfestar verði tvær mikilvægar reglur til viðbótar, þ.e. reglan um vísindalega þekkingu sem grundvöll ákvörðunartöku og reglan um viskerfisnálgun og mat á heildarálagi.

Í hvítbókinni er m.a. fjallað ítarlega um friðlýsingar og annars konar verndaraðgerðir hér á landi, náttúruminjaskrá og náttúruverndaráætlun, framandi tegundir, vatn, almannarétt og erfðaauðlindir. Gerð er úttekt á skipulagi stjórnsýslu á sviði náttúruverndar og fjallað er sérstaklega um ýmis verkefni stjórnvalda sem varða náttúruvernd.

Loks telur nefndin mikilvægt að ný náttúruverndarlög veiti skýrar heimildir til að beita þvingunarúrræðum ef ákvæðum laganna er ekki fylgt. Að auki telur nefndin rétt að skoða hvort ástæða sé til að setja ítarlegri ákvæði um ábyrgð á umhverfistjóni í lögum um náttúruvernd.  

Hvítbókin verður til umfjöllunar á Umhverfisþingi sem umhverfisráðuneytið efnir til 14. október. Í framhaldinu hefst opið umsagnarferli um bókina sem lýkur 1. desember. Að því loknu hefst vinna við gerð frumvarps um breytingar á náttúruverndarlögum þar sem umræðan á umhverfisþingi og framkomnar athugasemdir verða hafðar til hliðsjónar. Er gert ráð fyrir því að nýtt frumvarp til breytinga á náttúruverndarlögum komi til kasta Alþingis í vor.

Hvítbók um löggjöf til verndar náttúru Íslands (heildarrit) 

Hvítbók, skipt upp eftir köflum

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica