Umhverfismál og sveitarfélög

Samráð og samstarf

Þátttakendur við meirihluta borða bentu á að virkja þurfi almenning til ábyrgðar, til að takast á við nauðsynlegar breytingar. Til að það geti orðið, þurfi að breyta hugarfari og lífssýn. Einnig var bent á að efla þurfi tengsl milli kynslóða og fá unga sem aldna til að vinna vel saman. Leggja þurfi áherslu á lífsgæði með virðingu og hófsemi að leiðarljósi. Nefnt var að sjálfbært samfélag í merkingunni „gott samfélag“ til framtíðar með óskertum lífsgæðum sé í raun ósk allra. Nauðsynlegt sé að opna aðgengilegar leiðir til að virkja þá sem vilja taka þátt  í samfélagsmótun. Þannig megi  auka gleði og jákvæðni. 

Dæmi um tillögur og ábendingar:

  • Bæta virkt lýðræði og auka aðkomu almennings að einstökum málum með samráði. Aukin aðkoma leiðir til hlutdeildar allra í að leysa málin, bæði einstaklinga og sveitarfélaga.
  • Auka ábyrgð og virkni almennings í sjálfbærnimálum á öllum aldri.
  • Lýðræðisleg og siðræn gildi í öndvegi.
  • Hafa hemil á neyslu og leggja áherslur á önnur lífsgildi sem leiða til sjálfbærari lífsstíls.
  • Auðmýkt, virðing, hófsemi.
  • Hafa virðingu, samheldni og samábyrgð að leiðarljósi.
  • Ábyrgð og virkni almennings; Lykilatriði að eiga hlutdeild - „samráð í þessum stíl sem við erum að gera núna“.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica