Umhverfismál og sveitarfélög
Skipulagsmál
Við mörg borð voru skipulagsmál talin ein helsta undirstaða þess að ná raunverulegum árangri við uppbygginu sjálfbærs samfélags. Efla þurfi áherslu á sjálfbærni í skipulagsmálum. Þörf sé á markvissu skipulagi byggðar sem hafi sjálfbærni að leiðarljósi. Byggða- og samgöngumynstur þurfi að taka mið af sjálfbærniáherslum svo sem blöndun landnotkunar, þéttingu byggðar, þjónustu í nærumhverfinu, verndun náttúru, sögu og menningarverðmæta. Vinna þurfi skipulag og áætlanir með langtímahugsun að leiðarljósi fyrir alla landnýtingu og auðlindir. Landsskipulag var nefnt sem góð leið í þessu samhengi þar sem mótuð sé heildræn stefna um landnotkun með tilliti til lífs- og umhverfisgæða.
Dæmi um tillögur og ábendingar:
- Efla skipulag og skýra hlutverk í skipulagsmálum.
- Heildarsýn í samgöngumálum.
- Tryggja heildstæða þjónustu í nærumhverfi - Það eru skipulagsmál!
- Þétta byggð og blanda landnotkun. Lagarammi í skipulagsmálum á að leiða til sjálfbærni en ekki sóunar eins og verið hefur.
- Meta sögu- og menningarverðmæti og skilgreina náttúruvernd sem veigamikinn þátt í sjálfbærri þróun.
