Umhverfismál og sveitarfélög
Stefnumörkun og langtímahugsun - lagaumhverfi
Fram kom að langtímahugsun, skýr framtíðarsýn og góð samvinna allra í samfélaginu, sé nauðsynleg til að ná raunverulegum árangri við uppbyggingu sjálfbærs samfélags. Taka þurfi mið af öllum sviðum sjálfbærni. Hið opinbera þurfi að vera til fyrirmyndar í sínu starfi, styrkja þurfi lagaramma og tryggja eftirfylgni laga. Stefna stjórnvalda skipti lykilmáli til að ná árangri í átt að sjálfbærara samfélagi og henni þurfi að fylgja eftir með markmiðum og aðgerðum. Gæta þurfi að því að ríkiskerfið hindri ekki, heldur hvetji til sjálfbærs samfélags. Raunverulegur vilji stjórnvalda sé nauðsynlegur og í raun forsenda þess að árangri verði náð.
Dæmi um tillögur og ábendingar:
- Móta skýra framtíðarsýn og markmið til að vinna eftir.
- Koma stefnu í framkvæmd og fylgja vel eftir.
- Markmið þurfa að vera raunhæf, mælanleg, tímasett og fjármögnuð.
- Einfaldar og skýrar leikreglur og gott eftirlit.
- Vilji ráðamanna til að hafa áhrif til góðra verka og lausna þarf að vera sýnilegur.
- Bæta lagaumhverfi svo að það styðji við umhverfismál og sjálfbærni. Umhverfisglæpir verða að vera dýrir (t.d. umhverfisslys, utanvegaakstur).
