Umhverfismál og sveitarfélög
Upplýsing og fræðsla - viðhorfsbreyting
Fjölmargir hópar nefndu aukna umhverfis- og samfélagsvitund sem lykil að því að ná raunverulegum árangri við uppbyggingu sjálfbærs samfélags. Til þess að fólk skilji og skynji samhengið, vandamálið og lausnirnar sé þörf á víðtækri fræðslu og dæmum um orsakasamhengi. Rætt var um mikilvægi rannsókna á þessum sviðum. Einnig var bent á nauðsyn betri menntunar og fræðslu á öllum skólastigum og almennt í samfélaginu, um umhverfismál og hugtakið sjálfbæra þróun. Auka þurfi skilning og breyta hugarfari, efla umhverfisvitund og virðingu fyrir náttúrunni.
Dæmi um tillögur og ábendingar:
- Auka skilning á sjálfbærnihugtakinu, í hverju það felst og hvað hægt er að gera, með góðum dæmum. Ávinningur eða hvati þarf að vera augljós, ekki bara peningalegur, heldur einnig heilsufarslegur, félagslegur og umhverfislegur.
- Gera umhverfisvæna hluti sýnilega, hafa til dæmis grenndarstöðvar í nærumhverfi, það getur einnig aukið hverfisvitund.
- Setja Grænfánaverkefnið inn í skólanámskrá.
- Taka mið af nægjusemi og hófsemi í fræðslu og uppeldi.
- Breyta hugarfari og auka umhverfislæsi með umhverfisfræðslu.
- Auka fræðslu til ungmenna með áherslu á gagnrýna hugsun.
- Gera eftirsóknarvert að vera grænn – allir með!
