Umhverfismál og sveitarfélög
Heildarsýn - verðmætamat
Helstu skilaboð hópa beindust að nauðsyn þess að breyta verðmætamati og að leiðum til að hafa áhrif á það. Fram kom að breyta þurfi forsendum efnahagskerfis heimsins þannig að takmarkanir vistkerfis jarðarinnar séu virtar. Endurskilgreina þurfi hagvöxt og taka tillit til þjónustu vistkerfa. Hamingja og velferð verði einnig mælikvarðar á hagsæld. Nota ætti í auknum mæli hagræna hvata, svo sem í gegnum skattkerfið, sem umbuna umhverfisvænni hegðun og auka þannig líkur á því að almenningur og fyrirtæki leggist á eitt um að ná raunverulegum árangri við uppbyggingu sjálfbærs samfélags. Bent var á nauðsyn þess að horfa á raunkostnað við framleiðslu vöru og að vöruverð þurfi meðal annars að endurspegla kostnað vegna umhverfisáhrifa. Það sé vandamál þegar vöruverð endurspegli ekki raunkostnað samfélagsins, sem gerist þegar kostnaður vegna mengunar og/eða félagslegra þátta sé undanskilinn í framleiðslukostnaði.
Dæmi um tillögur og ábendingar:
- Alþjóðlegar og staðbundnar leikreglur þurfa að taka jafnt mið af hagrænum, umhverfislegum og félagslegum þáttum.
- Endurskilgreina mælingar á hagvexti þar sem tekið er tillit til vistkerfa og velferðar.
- Sá sem mengar á að greiða þann kostnað sem menguninni tengist, í stað þess að velta óbeinum kostnaði jafnt yfir á alla, líka þá sem ekki eiga sök á.
- Auka hlut endurnýjanlegra orkugjafa í samgöngum og nota t.d. metan, rafmagn og lífdísel.
- Nota hagræna hvata til að umbuna fyrir umhverfisvæna hegðun, til dæmis í sorpmálum.
- Breyta samgöngumynstri með hagrænum hvötum, þannig að sjálfsagðara sé að taka strætó, hjóla og sleppa einkabíl.
- Skipuleggja samgöngur með heildarsýn í huga. Nú greiða sveitarfélög hjólastíga og kostnað vegna strætó, en ríkið vegna vega og bílastæða. Þegar ekki er greitt úr sama vasa eru minni líkur á heildarhugsun og að tekið sé tillit til allra hliða sjálfbærni.
- Efla almenningssamgöngur með því að bjóða upp á fjölbreytta valkosti og haga skattlagningu þannig að hún taki mið af raunverulegum kostnaði samfélagsins.
- Verðleggja vörur þannig að verð endurspegli raunkostnað, til dæmis kostnað vegna förgunar, flutninga og annarrar mengunar.
