Umhverfismál og sveitarfélög

Málstofa á fyrri degi þingsins sneri að málefnum sveitarfélaga og hvernig þau geti betur stuðlað að umhverfisvernd og sjálfbærri þróun. Á samráðsfundi í tengslum við þessa málstofu var spurt:

„Hvernig náum við raunverulegum árangri við uppbyggingu sjálfbærs samfélags?”

Þátttakendur í þessari samræðu voru rúmlega 100 og sátu 5 til 6 saman við 19 borð. Hér á eftir fara helstu skilaboð samræðunnar um þetta viðfangsefni.

 

Heildarsýn - verðmætamat

Helstu skilaboð hópa beindust að nauðsyn þess að breyta verðmætamati og að leiðum til að hafa áhrif á það.

Lesa meira
 

Upplýsing og fræðsla - viðhorfsbreyting

Fjölmargir hópar nefndu aukna umhverfis- og samfélagsvitund sem lykil að því að ná raunverulegum árangri við uppbyggingu sjálfbærs samfélags. Lesa meira
 

Stefnumörkun og langtímahugsun - lagaumhverfi

Fram kom að langtímahugsun, skýr framtíðarsýn og góð samvinna allra í samfélaginu, sé nauðsynleg til að ná raunverulegum árangri við uppbyggingu sjálfbærs samfélags. Lesa meira
 

Skipulagsmál

Við mörg borð voru skipulagsmál talin ein helsta undirstaða þess að ná raunverulegum árangri við uppbygginu sjálfbærs samfélags. Lesa meira
 

Samráð og samstarf

Þátttakendur við meirihluta borða bentu á að virkja þurfi almenning til ábyrgðar, til að takast á við nauðsynlegar breytingar. Lesa meira
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica