Umhverfismál og atvinnulíf
Samvinna og samstarf
Aukin samvinna og samstarf kom fram sem mikilvæg leið til að byggja upp öflugt og umhverfisvænt atvinnulíf. Styrkja þurfi tengsl og samvinnu á þessu sviði milli ýmissa aðila í samfélaginu.
Dæmi um tillögur og ábendingar:
- Traust samráð er forsenda – skipuleggja vettvang fyrir samráð.
- Þurfum að þjálfa okkur í samvinnu!
- Samþætta umhverfismál inn í alla geira og skýra ábyrgð í þessu samhengi.
- Auka samvinnu og samstarf stjórnvalda, atvinnulífs, skóla, sérfræðinga og almennings.
