Málstofa á fyrri degi þingsins snerist um atvinnulífið og hvernig það geti brugðist við áskorunum á sviði umhverfismála og sjálfbærrar þróunar. Að loknum fræðandi erindum var þátttakendum boðið að ræða spurninguna:
„Hvernig byggjum við upp öflugt og umhverfisvænt atvinnulíf?”
Þátttakendur í þessari samræðu voru tæplega 70, þar sem 5 til 6 þátttakendur sátu saman við 12 borð. Hér á eftir fara helstu skilaboð samræðunnar um þetta viðfangsefni.
