Sjálfbært Ísland
Samstarf - kerfisbreytingar
Ýmsir hópar nefndu að endurskoða þurfi stjórnkerfi landsins auka samræðu í samfélaginu, lýðræðislega hugsun og þverfaglega samvinnu á öllum sviðum. Samráð stjórnvalda við ólíka hópa sé mikilvægt, svo sem við stofnanir, frjáls félagasamtök og ólíka þjóðfélagshópa, þvert á flokkspólitík.
Dæmi um tillögur og ábendingar:
- Þörf er á uppstokkun á kerfi og hugarfari.
- Finna allrahanda samstarfsaðila og talsmenn, þvert á stjórnmálaflokka.
- Efla samstarf og/eða samræðu atvinnulífs, stjórnvalda og félagasamtaka um „grænar lausnir“.
- Mikilvægt er að tala saman, móta sameiginlega sýn, vinna saman og fara úr flokkadráttunum. Slíkt felur meðal annars í sér að skilgreina saman hugtakið „sjálfbært Ísland“.
