Umhverfisþingið 2009 snerist um tengsl umhverfismála við atvinnu- og efnahagslífið og raunar alla þætti samfélagsins undir merkjum sjálfbærrar þróunar. Það var því við hæfi að í lok seinni þingdagsins væri spurningin sem samræðan snerist um víkkuð út og spurt:
„Sjálfbært Ísland – hvernig komumst við þangað?”
Samræðan fór fram við 21 borð og voru þátttakendur ríflega eitt hundrað. Hér á eftir fara helstu skilaboð samræðunnar um þetta viðfangsefni.
