Samráðsfundir á umhverfisþingi

Samráðsfundir á umhverfisþingi

Umhverfisráðherra ákvað að nýta vettvang þingsins til að fá efnivið frá þinggestum í stefnumörkun sem stjórnvöld eru að vinna að til að stuðla að sjálfbærari þróun samfélagsins. Ljóst var að á Umhverfisþingi yrði saman kominn mikill fjöldi fólks með góða innsýn í umhverfismál og stöðu sjálfbærrar þróunar á Íslandi. Það yrði því fengur að leiðsögn þátttakenda við þess stefnumörkun og aðra vinnu sem fram fer í umhverfisráðuneytinu. Því var  þinggestum boðin þátttaka í þremur samráðsfundum á Umhverfisþinginu. Samráðsfundirnir voru að hætti svokallaðs „heimskaffis“, þar sem þátttakendur ræða um tiltekna spurningu og koma sér saman um megin niðurstöður í lokin. Viðfangsefni samráðsfundanna þriggja:
  • Umhverfismál og sveitarfélög þar sem spurt var: „Hvernig náum við raunverulegum árangri við uppbyggingu sjálfbærs samfélags?”
  • Umhverfismálum og atvinnulífi þar sem spurt var: „Hvernig byggjum við upp öflugt og umhverfisvænt atvinnulíf?” 
  • „Sjálfbært Ísland – hvernig komumst við þangað?”
Ráðgjafarfyrirtækið Alta stjórnaði samráðsfundunum og tók saman niðurstöður. Hér liggur fyrir stutt samantekt frá hverjum ofangreindra samráðsfunda. Þar koma fram helstu skilaboð og áherslu atriði, með dæmum um tillögur og ábendingar úr meginskilaboðum þátttakenda.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica