Fréttir af umhverfisþingi

Framkvæmd stefnumörkunar um sjálfbæra þróun 2006-2009

Yfirlit yfir framkvæmd stefnumörkunar stjórnvalda um sjálfbæra þróun 2006-2009 hefur verið tekið saman fyrir Umhverfisþing 2009.

Stefnumörkunin 2006-2009 var fyrsta endurskoðunin á stefnumörkun stjórnvalda frá 2002, sem ber heitið ,,Velferð til framtíðar". Þar var settur fram rammi um stefnumörkun um sjálfbæra þróun í íslensku samfélagi fram til 2020 en jafnframt tekið fram að ætlunin væri að uppfæra stefnumörkunina reglulega á því tímabili og endurskoða áherslur. Í endurskoðaðri stefnumörkun 2006-2009 var að finna áherslur stjórnvalda varðandi 17 markmið á sviði umhverfisverndar og auðlindanýtingar.

Sjálfbær þróun verður meginefni Umhverfisþings að þessu sinni og á þinginu verða kynnt drög að nýjum áherslum stjórnvalda um sjálfbæra þróun.

Hér má nálgast yfirlitið (pdf-skjal).




Þetta vefsvæði byggir á Eplica