Fréttir af umhverfisþingi

Óskað eftir tillögum almennings um stefnu um sjálfbæra þróun

Umhverfisráðuneytið óskar nú eftir tillögum frá almenningi sem nýst geta stjórnvöldum við endurskoðun stefnumörkunar um sjálfbæra þróun í íslensku samfélagi 2010-2013. Fyrstu drög voru kynnt á Umhverfisþingi 9. og 10. október þar sem þinggestir tóku virkan þátt í umræðum um sjálfbæra þróun. Lesa meira
 

Umhverfisráð ungmenna verður ráðherra til ráðgjafar

Umhverfisþingi lauk í dag. Í lokaávarpi þingsins sagði Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra að hún hefði ákveðið að stofna umhverfisráð ungmenna sem verður umhverfisráðherra til ráðgjafar. Fulltrúar ungs fólks á Umhverfisþingi lögðu fram tillögu þess efnis.

Lesa meira
 

Fjölmennt Umhverfisþing hafið

Umhverfisþing hófst í morgun. Rúmlega 400 höfðu skráð sig til þátttöku á þinginu og það er því fjölmennasta Umhverfisþing sem haldið hefur verið. Í setningarræðu þingsins sagði Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðhrera m.a. að ríkisstjórnin legði áherslu á náttúrvernd og að staða hennar innan stjórnarráðsins yrði styrkt til muna. 

Lesa meira
 

Framkvæmd stefnumörkunar um sjálfbæra þróun 2006-2009

Yfirlit yfir framkvæmd stefnumörkunar stjórnvalda um sjálfbæra þróun 2006-2009 hefur verið tekið saman fyrir Umhverfisþing 2009. Í áætluninni var að finna áherslur stjórnvalda varðandi 17 markmið á sviði umhverfisverndar og auðlindanýtingar.

Lesa meira
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica