Stofnanir sem heyra undir umhverfisráðuneytið
| Landgræðsla ríkisins |
Landgræðsla ríkisins vinnur fyrir stjórnvöld og aðra hagsmunaaðila að stöðvun jarðvegs- og gróðureyðingar, endurheimt landgæða, gróðurvernd og gróðureftirliti. Ennfremur að rannsóknum og þróun á þessu sviði og fræðslu. Þá er stofnunin í forsvari fyrir Íslands hönd í erlendu samstarfi á sviði landgræðslu. |
|
Hlutverk Landmælinga Íslands er að afla, vinna úr, geyma og selja landfræðileg gögn og upplýsingar um Ísland með þeim gæðum sem samfélagið, fyrirtæki og einstaklingar hafa þörf fyrir á hverjum tíma. |
|
| Mannvirkjastofnun | Helsta hlutverk Mannvirkjastofnunar er að sinna stjórnsýslu á sviði byggingarmála, brunavarna og rafmagnsöryggismála. Árangursstjórnunarsamningur |
| Náttúrufræðistofnun Íslands |
Stofnunin skal stunda undirstöðurannsóknir í dýrafræði, grasafræði og jarðfræði landsins og annast skipulega heimildasöfnun um náttúru landsins. Hún skal varðveita niðurstöður og eintök í fræðilegum söfnum er veiti sem best yfirlit um náttúru landsins. |
| Náttúrurannsóknastöðin við Mývatn |
Stöðin sér um að framkvæmdar verði þær rannsóknir sem eru nauðsynlegur grundvöllur verndunar Mývatns og Laxár og er stjórnvöldum til ráðgjafar um allt það er lítur að náttúruvernd í Skútustaðahreppi og í og meðfram Laxá til sjávar. |
| Skipulagsstofnun |
Hlutverk stofnunarinnar er að hafa eftirlit með framkvæmd skipulagslaga og reglugerða sem settar eru samkvæmt þeim, að veita ráðgjöf um skipulags- og byggingarmál, að sjá um að upplýsingar um áætlanir um landnotkun á landsvísu séu fyrir hendi og stuðla að innbyrðis samræmi þeirra, og að framfylgja ákvæðum laga um mat á umhverfisáhrifum. |
| Skógrækt ríkisins |
Skógrækt ríkisins er þekkingar-, þróunar- og þjónustuaðili, sem vinnur með og fyrir stjórnvöld, almenning og aðra hagsmunaaðila að rannsóknum, þróun, ráðgjöf og þekkingarmiðlun á sviði skógræktar. Þá er stofnunin í forsvari fyrir Íslands hönd í erlendu samstarfi á sviði skógræktar. Árangursstjórnunarsamningur |
| Stofnunin er samstarfsvettvangur þeirra sem sinna málefnum norðurslóða hér á landi og er ætlað að efla umhverfisrannsóknir á norðurslóðum og stuðla að sjálfbærri þróun og efla þátttöku Íslendinga í alþjóðasamstarfi á því sviði. Stofnunin hefur aðsetur á Akureyri. Árangursstjórnunarsamningur |
|
| Umhverfisstofnun |
Hlutverk stofnunarinnar er að stuðla að velferð almennings með því að beita sér fyrir heilnæmu umhverfi, öruggum neysluvörum og verndun og sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda. |
| Úrvinnslusjóður |
Úrvinnslusjóður sér um umsýslu úrvinnslugjalds og ráðstöfun þess. Hann skal með hagrænum hvötum koma upp skilvirku fyrirkomulagi á úrvinnslu úrgangs sem er tilkominn vegna vara sem falla undir lög um Úrvinnslusjóð. Árangursstjórnunarsamningur |
| Vatnajökulsþjóðgarður |
Vatnajökulsþjóðgarður fer með stjórn þjóðgarðsins, rekur gestastofur hans, sinnir landvörslu og veitir gestum þjóðgarðsins fræðslu og þjónustu. Árangursstjórnunarsamningur |
| Veðurstofa Íslands |
Hlutverk Veðurstofu Íslands er vöktun lofts, láðs og lagar með öflun, gæðaeftirliti, varðveislu og greiningu upplýsinga ásamt rannsóknum byggðum á þeim. Einnig miðlun upplýsinga og þjónusta við notendur. |
