-
KynningarfundurÁ Selfossi, f.v. Hafdís Hafliðadóttir, sviðsstjóri hjá Skipulagsstofnun, Stefán Thors, skipulagsstjóri ríkisins og Sigríður Auður Arnardóttir, skrifstofustjóri í umhverfisráðuneytinu
Samgönguáætlun í umhverfismat samkvæmt nýjum lögum
Síðastliðið vor samþykkti Alþingi frumvarp umhverfisráðherra um lög um umhverfismat áætlana en lögin kveða á um að meta skuli umhverfisáhrif af tilteknum skipulags- og framkvæmdaáætlunum stjórnvalda. Samgönguáætlun er dæmi um áætlun sem fellur undir gildissvið laganna og hefur samgönguráðuneytið nýverið auglýst umhverfismat samgönguáætlunar 2007-2018. Það er fyrsta umhverfismatið sem unnið er samkvæmt lögum um umhverfismat áætlana. Skipulagsstofnun og umhverfisráðuneytið munu í október standa fyrir kynningu á lögunum á opnum fundum um allt land. Fyrsti fundurinn fór fram á Selfossi í gær.
Markmið laga um umhverfismat áætlana er að tryggja að tillit sé tekið til sjónarmiða um umhverfisvernd og sjálfbæra þróun strax við gerð skipulags- og framkvæmdaáætlana stjórnvalda sem eru taldar hafa í för með sér veruleg áhrif á umhverfið. Þannig sé hugað að umhverfisáhrifum á fyrri stigum ákvörðunartöku og með því dregið úr verulegum neikvæðum umhverfisáhrifum slíkra áætlana.
Í drögum að umhverfismati samgönguáætlunar er m.a. fjallað um áhrif á náttúru, þ.á.m. náttúrufar, loftslag, haf, landslag og ímynd. Meginumhverfisáhrif framkvæmda sem gerð eru ráð fyrir í samgönguáætlun eru talin vera vegna taps á búsvæðum plöntu- og dýrategunda, skerðingar á landslagi og ímynd og áhrif samgangna á loftslag. Unnt er að gera athugasemdir við umhverfismatið til 20. nóvember og skulu þær sendar samgönguráðuneytinu.
Meðal annarra áætlana sem lögin ná til eru skipulagsáætlanir eins og aðal- og svæðisskipulagsáætlanir, auk landgræðslu-, skógræktar- og byggðaáætlana. Sá sem ber ábyrgð á gerð viðkomandi áætlunar ber jafnframt ábyrgð á að vinna umhverfismat í formi umhverfisskýrslu. Í lögunum er nákvæmlega kveðið á um hvaða þættir eigi að koma fram í skýrslunni en þar á m.a. að lýsa þeim umhverfisþáttum sem eru líkleg til að verða fyrir verulegum áhrifum af framkvæmd áætlunarinnar. Þá skal lýsa og meta hver séu líkleg veruleg umhverfisáhrif af framkvæmd áætlunarinnar.
Áður en áætlunin og umhverfismat hennar eru afgreidd af viðkomandi stjórnvaldi ber að veita almenningi sex vikna frest til að koma á framfæri athugasemdum varðandi umhverfisáhrif áætlunarinnar. Þegar stjórnvald afgreiðir áætlun ber því að hafa hliðsjón af athugasemdum sem borist hafa ásamt því að hafa hliðsjón af sjálfri umhverfisskýrslunni. Þegar áætlun hefur að lokum verið samþykkt skal gera hana og gögn henni tengdri aðgengilega almenningi og stjórnvöldum ber m.a. að gera grein fyrir því með hvaða hætti umhverfissjónarmið hafa verið felld inn í viðkomandi áætlun. Skipulagsstofnun skal veita þeim er framkvæma umhverfismat áætlana leiðbeiningar og ráðgjöf. Að auki ber stofnuninni að fylgjast með framkvæmd laganna. Drög að leiðbeiningum um umhverfismat áætlana má nálgast á vef Skipulagsstofnunar en gert er ráð fyrir að leiðbeiningar liggi fyrir um næstu mánaðamót.
