Umhverfisráðherra staðfestir úrskurð um Gjábakkaveg

11.5.2007

Umhverfisráðherra hefur staðfest úrskurð Skipulagsstofnunar frá 24. maí 2006 um mat á umhverfisáhrifum Gjábakkavegar með einu skilyrði. Úrskurður stofnunarinnar var kærður til umhverfisráðuneytisins og gerði kærandi þá kröfu að úrskurðurinn yrði felldur úr gildi á þeim forsendum að vegurinn hefði í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif í skilningi laga um mat á umhverfisáhrifum.

Umhverfisráðuneytið telur með vísan til röksemda sem taldar eru upp í fimm liðum í úrskurðinum og að teknu tilliti til þeirra mótvægisaðgerða sem fram koma í úrskurði Skipulagsstofnunar og þess skilyrðis sem ráðuneytið setur um mælingar á mengun, að áhrif vegarins teljist ekki vera umtalsverð í skilningi laga um mat á umhverfisáhrifum.

Úrskurður umhverfisráðherra (pdf)



Senda grein

Þetta vefsvæði byggir á Eplica