Ákvörðun Skipulagsstofnunar staðfest - 3.4.2008

Umhverfisráðherra staðfesti í dag ákvörðun Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum álvers í Helguvík. Landvernd kærði ákvörðun Skipulagsstofnunar að beita ekki heimild til að meta sameiginlega umhverfisáhrif álversins og tengdra framkvæmda. Lesa meira
 
Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra

Landsskipulagsáætlun er verkfæri við umhverfisvernd - 6.3.2008

Í frumvarpi til skipulagslaga, sem umhverfisráðherra lagði fyrir Alþingi nýlega, er viðurkennd þörfin á því að ríkisvaldið leggi til heildstæða sýn í skipulagsmálum. Við því er brugðist með ákvæði um svonefnda landsskipulagsáætlun. Þetta er meðal þess sem segir í grein umhverfisráðherra sem birtist í Fréttablaðinu nýlega. Lesa meira
 
Alþingi

Umhverfisráðherra leggur til breytingar á mannvirkja- og skipulagslögum - 12.2.2008

Umhverfisráðherra mælir fyrir þremur frumvörpum til laga á Alþingi í dag; frumvarpi til laga um mannvirki, frumvarpi til skipulagslaga og frumvarpi um breytingu á lögum um brunavarnir. Í frumvarpi til skipulagslaga er m.a. lögð áhersla á að ríkisvaldið geti lagt fram heildstæða sýn í skipulagsmálum sem varða almannahagsmuni. Í frumvarpi til laga um mannvirki er m.a. lögð áhersla á að tryggja gæði, öryggi og heilnæmi mannvirkja. Lesa meira
 
Skipulagsstofnun

Afmælisár hjá Skipulagsstofnun - 18.1.2008

Í ár eru 70 ár frá því að komið var á fót forvera Skipulagsstofnunar, tíu ár frá gildistöku skipulags- og byggingarlaganna og fimmtán ár frá því að fyrstu lög um mat á umhverfisáhrifum voru sett hér á landi. Skipulagsstofnun mun af þessu tilefni efna til ýmissa viðburða til að vekja athygli á viðfangsefnum stofnunarinnar og stuðla að aukinni umræðu um þau. Lesa meira
 
Grunnafjörður.

Tillögu um vegalagningu yfir Grunnafjörð synjað - 21.8.2007

Umhverfisráðherra hefur synjað staðfestingu á þeim hluta aðalskipulags Leirár- og Melahrepps er varðar vegalagningu yfir Grunnafjörð. Grunnafjörður er talinn eitt mikilvægasta votlendissvæði hér á landi og eitt af þremur svæðum á landinu sem tilkynnt hefur verið til alþjóðlegrar skrár um verndun votlendis. Lesa meira
 

Umhverfisráðherra staðfestir úrskurð um Gjábakkaveg - 11.5.2007

Umhverfisráðherra hefur staðfest úrskurð Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum Gjábakkavegar. Ráðuneytið telur með vísan til röksemda sem taldar eru upp í fimm liðum í úrskurðinum og að teknu tilliti til þeirra mótvægisaðgerða sem fram koma í úrskurði Skipulagsstofnunar og þess skilyrðis sem ráðuneytið setur um mælingar á mengun, að áhrif vegarins teljist ekki vera umtalsverð í skilningi laga um mat á umhverfisáhrifum. Lesa meira
 

Umhverfisráðherra fellst á kröfu um að heimila lagningu Vestfjarðarvegar um Teigsskóg - 6.1.2007

Umhverfisráðherra hefur staðfest úrskurð Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum Vestfjarðarvegar á milli Bjarkarlundar og Eyrar í Reykhólahreppi, nema hvað varðar leið B í 2. áfanga þar sem vegastæðið liggur um Teigsskóg í Þorskafirði. Að teknu tilliti til umferðaröryggissjónarmiða er fallist á að vegurinn liggi um skóginn, en með sex skilyrðum. Lesa meira
 
Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra dregur íslenska fánann að húni ásamt Lars Prahm, framkvæmdastjóri EUMETSAT, og Declan Murphy, formanni stjórnar aðaldarríkja EUMETSAT.

Ísland orðið aðili að samstarfi Evrópuþjóða um fjarkönnun utan úr geimnum - 1.12.2006

Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra ávarpaði aðildaríkjafund Evrópsku veðurgervihnattastofnunarinnar (EUMETSAT) og dró Íslenska fánann að húni í höfuðstöðvum stofnunarinnar í Darmstadt í Þýskalandi í gær. Með þeirri táknrænu athöfn umhverfisráðherra varð Ísland þrítugasta ríkið í samstarfi Evrópuþjóða um fjarkönnun utan úr geimnum. Lesa meira
 

Efnistaka af hafsbotni í mat á umhverfisáhrifum samkvæmt úrskurði - 16.11.2006

Umhverfisráðherra hefur staðfest að efnistaka af hafsbotni í Kollafirði í Faxaflóa skuli sæta mati á umhverfisáhrifum. Að mati ráðuneytisins er fyrirhuguð efnistaka af hafsbotni í Kollafirði umfangsmikil framkvæmd sem getur haft veruleg áhrif á jarðfræði, lífríki, landslag og gerð botnsins á og umhverfis námasvæðin.

Lesa meira
 

Málþing um samþættingu áætlana á norðurslóðum sett í dag - 31.10.2006

Málþing um fjölþjóðlega norðurslóðaverkefnið Samþætting áætlana á norðurslóðum var sett í dag. Magnús Jóhannesson, ráðuneytisstjóri umhverfisráðuneytisins, flutti setningarávarp við upphaf málþingsins. Lesa meira
 
Á kynningarfundi á Selfossi, f.v. Hafdís Hafliðadóttir, sviðsstjóri á Skipulagsstofnun, Stefán Thors, skipulagsstjóri ríkisins og Sigríður Auður Arnórsdóttir, skrifstofustjóri í umhverfisráðuneytinu

Samgönguáætlun í umhverfismat samkvæmt nýjum lögum - 10.10.2006

Tilteknar skipulags- og framkvæmdaáætlanir stjórnvalda skulu fara í umhverfismat samkvæmt lögum um umhverfismat áætlana sem voru samþykkt á Alþingi í vor. Markmið laganna er að tryggja að tillit sé tekið til sjónarmiða um umhverfisvernd strax á fyrri stigum ákvörðunartöku stjórnvalda og með því dregið úr neikvæðum umhverfisáhrifum þeirra. Samgönguáætlun 2007-2008 er fyrsta opinbera áætlunin sem fer í slíkt umhverfismat. Lesa meira
 

Tillögur um nýja skipan skipulags- og byggingarmála. - 3.7.2006

Almenningi gefst kostur á að koma á framfæri athugasemdum við frumvarpsdrögum að frumvarpi til laga um mannvirki og frumvarpi til skipulagslaga til 15. ágúst 2006. Lesa meira
 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica