Skipurit

Skipurit umhverfisráðuneytisins

20.1.1998

Skipurit umhverfisráðuneytisins

Ráðherra Skrifstofa fjármála og rekstrar Skrifstofa laga- og stjórnsýslu Skrifstofa stefnumótunar og alþjóðamála

Verkefni skiptast á milli skrifstofa á eftirfarandi hátt:

Skrifstofa fjármála og rekstrar

Meginhlutverk
Rekstur ráðuneytisins, fjárlagagerð, rekstrarlegt eftirlit með fjármálum stofnana ráðuneytisins, eignaumsýslu, innri upplýsinga- og fræðslumál auk skjalavörslu. Þá er í umsjón skrifstofunnar gerð kostnaðarmata og kostnaðarúttekta. Skrifstofan vinnur að stefnumótun varðandi rekstur ráðuneytisins og tekur þátt í alþjóðlegu samstarfi er tengjast verkefnum á sviði fjármálastjórnunar og hagrænna stjórntækja á vegum ESB, Norrænu ráðherranefndarinnar, OECD og annað alþjóðlegt samstarf á starfsviði skrifstofunnar.

Málaflokkar
Fjármálaumsýsla ráðuneytisins, fjárlagagerð og rekstrarlegt eftirlit með stofnunum ráðuneytisins, kostnaðarmöt, skjalavarsla, innri upplýsingamál, umbóta- og fræðslumál.

Skrifstofa laga og stjórnsýslu

Meginhlutverk
Umsjón með stjórnsýslu ráðuneytisins og framkvæmd hennar og umsjón með gerð lagafrumvarpa og reglugerða. Þá hefur skrifstofan umsjón með samskiptum ráðuneytisins við Alþingi vegna löggjafarmálefna og annast afgreiðslu erinda til umboðsmanns Alþingis og ríkislögmanns. Skrifstofan hefur umsjón með framkvæmd EES samningsins og starfi ráðuneytisins og stofnana þess í sérfræðinganefndum EFTA og ESB og umhverfisnefnd EFTA. Skrifstofan tekur þátt í norrænu samstarfi á sviði skipulags-, byggingar-, mengunar- og úrgangsmála.

Málaflokkar
Mengunarvarnir, úrgangsmál, matvæli, hollustuhættir, efni og efnavörur, mannvirkja- og brunamál, náttúruvá og ofanflóðavarnir, skipulagsmál, mat á umhverfisáhrifum, náttúruvernd, veiðistjórnun og dýravernd.

Skrifstofa stefnumótunar og alþjóðamála

Meginhlutverk
Umsjón með gerð og uppfærslu stefnumótandi áætlana í umhverfismálum og sjálfbærri þróun í samvinnu við aðrar skrifstofur, stofnanir, ráðuneyti og félagasamtök og hafa yfirsýn yfir alþjóðlega umræðu um umhverfismál og taka þátt í henni fyrir Íslands hönd. Skrifstofan á að hafa yfirsýn yfir vöktun á íslenskri náttúru og hafa umsjón með birtingu lykilupplýsinga um ástand og þróun umhverfisins.

Málaflokkar
Sjálfbær þróun, loftslagsmál, líffræðileg fjölbreytni, náttúrurannsóknir og vöktun, verndun umhverfis hafsins, hnattræn mengunarmál, landnýtingaráætlanir, landmælingar, kortagerð, landgræðsla, skógrækt og vatnamælingar.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica