Umsjónanefnd með minkaátaksverkefni 2006-2008
Skipuð 17. mars 2006
Ákveðið hefur verið að ráðast í þriggja ára tilraunaverkefni um útrýmingu minks á völdum svæðum á landinu með það fyrir augum að kanna möguleika á landsátaki í eyðingu minks. Í verkefninu felst m.a. að kanna hvaða veiðiaðferðir henti best þar sem tekið verði mið af landfræðilegum aðstæðum.
Umsjónarnefndin hefur það hlutverk að hafa umsjón með verkefninu og sjá um fjármál þess. Í því er fólgið að gera tillögur um vöktun svæðanna og umfang verkefnisins, annast viðræður og samninga um þátttöku sveitarfélaganna og annarra hagsmunaaðila, koma á fót ráðgjafarhópi sérfræðinga nefndinni til ráðgjafar og verkefnisstjórnum á hverju svæði. Starfshópurinn skal vinna að þessum verkefnum í náinni samvinnu við Umhverfisstofnun, Náttúrufræðistofnun Íslands og hagsmunaaðila.
Án tilnefningar
Hugi Ólafsson, formaður
Hrafnhildur Á. Þorvaldsdóttir
Samkvæmt tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga
Erla Friðriksdóttir
