Samstarfsnefnd um líffræðilegan fjölbreytileika
Nefndin skipuð 18. feb. 1998
Ísland gerðist aðili að samningi um líffræðilega fjölbreytni hinn 11. desember 1994. Markmið samningsins er að vernda líffræðilega fjölbreytni og að stuðla að sjálfbærri nýtingu lifandi náttúruauðlinda. Í ljósi þess að ákvæði samningsins varða verksvið fleiri ráðuneyta.
Hlutverk nefndarinnar er að:
1. Gera tillögur til ráðuneytisins um þátttöku í þróun samningsins og áherslur íslenskra stjórnvalda í því sambandi.
2. Fylgjast með umræðum og tillögugerð innan samningsins og gera tillögur um afstöðu íslenskra stjórnvalda til þeirra.
3. Gera tillögur um nauðsynlega þátttöku í alþjóðlegu starfi sem tengist samningnum.
4. Fara yfir ákvarðanir sem eru teknar innan samningsins og gera tillögur um framfylgd þeirra hér á landi.
Án tilnefningar
Sigurður Ármann Þráinsson, formaður
Jón Gunnar Ottósson
Samkvæmt tilnefningu landbúnaðarráðuneytis
Þorsteinn G. Tómasson
Samkvæmt tilnefningu utanríkisráðuneytis
Guðni Bragason, sendiráðunautur
Samkvæmt tilnefningu sjávarútvegsráðuneytis
Kristín Haraldsdóttir, deildarstjóri
