Ráðgjafanefnd um úthlutun úr Veiðikortasjóði
Skipuð 29. nóvember 2010
Umhverfisráðherra skipar ráðgjafanefnd um úthlutun úr Veiðikortasjóði til tveggja ára í senn skv. verklagsreglum umhverfisráðuneytisins fyrir Veiðikortasjóð dags. 1. nóvember 2010.
Umsögn Umhverfisstofnunar um umsóknir umsækjenda úr Veiðikortasjóði svo og tillaga stofnunarinnar um úthlutun úr sjóðnum skal unnin í samráði ráðgjafanefndina.
Ráðgjafanefndin skal skipuð með eftirfarandi hætti: Einn fulltrúi Bændasamtaka Íslands, einn fulltrúi Skotvís, einn fulltrúi frjálsra félagasamtaka á sviði náttúruverndar og tveir fulltrúar sem Umhverfisstofnun tilnefnir, annar á sviði stofnvistfræða og hinn á sviði veiðistjórnunar og skal annar þeirra vera formaður nefndarinnar.
Nefndin skal setja sér starfsreglur þar sem fram koma þau skilyrði sem lögð eru til grundvallar við mat á umsóknum. Þá skal nefndin leggja fram tillögu til umhverfisráðuneytisins um umsóknareyðublað sem endurspeglar starfsreglur sjóðsins og þær upplýsingar sem fram þurfa að koam við mat á umsóknum.
Samkvæmt tilnefningu Umhverfisstofnunar
Bjarni Pálsson, formaður
Steinar Rafn Beck
Samkvæmt tilnefningu Bændasamtaka Íslands
Jóhannes Sigfússon
Samkvæmt tilnefningu Skotveiðifélags Íslands
Margrét Pétursdóttir
Samkvæmt tilnefningu frjálsra félagasamtaka á sviði umhverfisverndar
Droplaug Ólafsdóttir
