Stýrihópur um aðgerðir gegn útbreiðslu alaskalúpínu
Skipaður 9. júlí 2010.
Í nóvember 2009 fól umhverfisráðuneytið forstjóra Náttúrufræðistofnunar og landgræðslustjóra að vinna tillögur um aðgerðir varðandi alaskalúpínu. Skiluðu stofnanirnar tillögum til umhverfisráðherra í skýrslu þess efnis í apríl 2010 - “Alaskalúpína og skógarkerfill á Íslandi: útbreiðsla, varnir og nýting”.
Stýrihópnum er falið að móta og samræma aðgerðir við kortlagningu á útbreiðslu alaskalúpínu og skógarkerfils, varnir og upprætingu á friðlýstum svæðum, svo og á miðhálendinu, taka saman grunnupplýsingar um alaskalúpínu og skógarkerfil fyrir almenning og aðra vörslumenn lands.
Skipunartími hópsins er þrjú ár og skal hann skila árlega skýrslu til umhverfisráðherra.
Formenn:
Sveinn Runólfsson, landgræðslustjóri
Jón Gunnar Ottósson, forstjóri Náttúrufræðistofnunar Íslands
Fulltrúar í stýrihópnum:
Ásrún Elmarsdóttir, plöntuvistfræðingur, Náttúrufræðistofnun Íslands.
Trausti Baldursson, líffræðingur, Náttúrufræðistofnun Íslands.
Elín Fjóla Þórarinsdóttir, landfræðingur, Landgræðslu ríkisins.
Magnús Jóhannsson, líffræðingur, Landgræðslu ríkisins.
