Starfshópur um framkvæmd byggingareftirlits
Skipaður 5. febrúar 2009
Starfshópurinn hefur það hlutverk að fara yfir skýrslu Benedikts Jónssonar, verkfræðings, „Byggingareftirlitið - Könnun á störfum og starfsaðstöðu byggingarfulltrúa". Skýrslan var gefin út af Brunamálastofnun og Skipulagsstofnun í nóvember 2008. Starfshópnum er ætlað að vinna að skilgreiningum verkefna til að framkvæma þær tillögur að úrbótum sem fram koma í skýrslunni.
Samkvæmt tilnefningu Skipulagsstofnunar
Stefán Thors, formaður
Án tilnefningar
Hafsteinn Pálsson
Samkvæmt tilnefningu Brunamálastofnunar
Björn Karlsson
Samkvæmt tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga
Einar Júlíusson
Gísli Norðdahl
Helga Björk Laxdal
