Samstarfsnefnd ráðuneyta um sjálfbæra þróun
Skipuð 18. nóvember 2008
Í samræmi við ákvörðun ríkisstjórnarinnar frá árinu 2001 skipar umhverfisráðherra samstarfsnefnd ráðuneyta um sjálfbæra þróun. Í nefndinni skulu eiga sæti fulltrúar umhverfisráðuneytis, forsætisráðuneytis, fjármálaráðuneytis, iðnaðarráðuneytis, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis, samgönguráðuneytis, og utanríkisráðuneytis. Á árinu 2005 var ákveðið að menntamálaráðuneytið tilnefndi einnig fulltrúa í nefndina.
Hlutverk nefndarinnar er einkum:
- að fylgjast með framkvæmd stefnu ríkisstjórnarinnar um sjálfbæra þróun og taka
þátt í að skrifa skýrslur um framkvæmd hennar,
- að taka þátt í endurskoðun stefnunnar á fjögurra ára fresti og móta stefnuna
til næstu fjögurra ára,
- að ræða um önnur málefni sem tengjast stefnumótun um sjálfbæra þróun og ástæða
þykir til að fjalla um á vettvangi nefndarinnar.
Fulltrúar umhverfisráðuneytis
Hugi Ólafsson, formaður
Hrafnhildur Ásta Þorvaldsdóttir
Danfríður Skarphéðinsdóttir
Samkvæmt tilnefningu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis
Þosteinn Tómasson
Samkvæmt tilnefningu fjármálaráðuneytis
Sigurður Guðmundsson
Samkvæmt tilnefningu menntamálaráðuneytis
Sesselja Snævarr
Samkvæmt tilnefningu iðnaðarráðuneytis
Helga Barðadóttir
Samkvæmt tilnefningu utanríkisráðuneytis
Helga Hauksdóttir
Samkvæmt tilnefningu samgönguráðuneytis
Rúnar Guðjónsson
Stefanía Traustadóttir
