Starfshópur um utanvegaakstur
Skipaður 28. febrúar 2008
Starfshópnum er ætlað, á grundvelli kortlagninga Landmælinga Íslands, að gera tillögur um hvaða vegir og slóðar á miðhálendi Íslands sem eru utan vegakerfi Vegagerðinnar, skulu teljast til vega með hliðsjón af ákvæðum í náttúruverndarlögum um bann við akstri utan vega og í samráði við sveitarfélög landsins gera tillögur um hvaða vegir skulu lokaðir til frambúðar eða tímabundið og hvaða slóðar / vegir skulu vera opnir. Ennfremur er hópunum ætlað að koma með tillögur um hvernig best verði staðið að framkvæmd tillagnanna.
Jafnframt skal starfshópurinn fara yfir framkvæmd tillagna starfshóps um utanvegaakstur sem skilaði skýrslu í apríl 2005 og meta framkvæmd þeirra og eftir atvikum gera tillögur um frekari framkvæmd þeirra.
Án tilnefningar
Sesselja Bjarnadóttir, formaður
Samkvæmt tilnefningu Umhverfisstofnunar
Ólafur Arnar Jónsson
Samkvæmt tilnefningu Landmælinga Íslands
Steinunn Elva Gunnarsdóttir
Samkvæmt tilnefningu Vegagerðarinnar
Eymundur Runólfsson
