Stjórn Kvískerjasjóðs
Skipuð 17 febrúar 2011
Kvískerjasjóður starfar á grundvelli laga um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá nr. 1606, sbr. lög nr. 19/1988.
Sjóðurinn er stofnaður til heiðurs Kvískerjabræðrum fyrir framlag þeirra til öflunar þekkingar og rannsókna á náttúru og sögu Austur-Skaftafellssýslu. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að og styrkja rannsóknir á menningarminjum í Austur-Skaftafellssýslu. Markmiðum sjóðsins skal ná með veitingu rannsóknastyrkja til stofnana og einstaklinga til rannsókna á náttúru og menningarminjum í Austur-Skaftafellssýslu.
Stjórnin skal veita sjóðnum forstöðu og ber ábyrgð á fjárvörslu hans. Stjórnin tekur ákvarðanir á fundum sínum og skal haldin gerðabók um alla fundi og bóka skilgreinilega þær ákvarðanir sem teknar eru.
Án tilnefningar
Sigurlaug Gissurardóttir, formaður
Erling Ólafsson
Samkvæmt tilnefningu menntamálaráðuneytisins
Hellen Magnea Gunnarsdóttir
Heimasíða Kvískerjasjóðs er kviskerjasjodur.is.
