Samráðsnefnd um framkvæmd laga um meðhöndlun úrgangs
Skipuð 17. september 2003
Nefndin er skipuð í samræmi við II. ákvæði til bráðabirgða í lögum nr. 55/2003, um meðhöndlum úrgangs og skal starfa til ársins 2010. Nefndin skal skipuð sex mönnum, þremur samkvæmt tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga og þremur samkvæmt tilnefningu umhverfisráðherra.
Hlutverk nefndarinnar er að fylgjast með þróun meðhöndlunar úrgangs hér á landi og á Evrópska efnahagssvæðinu. Sérstaklega skal nefndin fylgjast með hvernig markmiðum laganna er náð og meta þann kostnað sem hlýst af því. Nefndin skal skila árlega skýrslu til umhverfisráðherra og Sambands íslenskra sveitarfélaga og setja fram eftir því sem þörf krefur tillögur um hvernig kostnaði verði mætt.
Án tilnefningar
Sigurbjörg Sæmundsdóttir, formaður
Þorsteinn Sæmundsson
Sigríður Kristjánsdóttir
Samkvæmt tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga
Hrefna Jónsdóttir
Björn H. Halldórsson
Lúðvík E. Gústafsson
