Úrskurðarnefnd hollustuhátta- og mengunarvarnarmála
Nefndin var lögð af 1. janúar 2012 skv. 17. gr. laga nr. 131/2011 um breytingu á ýmsum lögum vegna fullgildingar Ársósasamningsins og í stað hennar verður skipuð ný úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Nefndin mun þó starfa skv. ákvæði til bráðabirgða í lögum nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála þar til öllum málum sem nefndin hafði til efnismeðferðar fyrir gildistöku laganna er lokið
Skipuð 1. júní 2011
Nefndin er skipuð skv. 31. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir til fjögurra ára. Í nefndinni skulu eiga sæti þrír lögfræðingar sem uppfylla skulu starfsgengisskilyrði héraðsdómara, formaður tilnefndur af Hæstarétti, einn tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga og einn án tilnefningar. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti.
Hlutverk nefndarinnar er að úrskurða í ágreiningsmálum um framkvæmd laganna, reglugerða settra samkvæmt þeim eða heilbrigðissamþykkta sveitarfélaga eða um ákvarðanir yfirvalda.
Erindi til nefndarinnar sendist til Steinunnar Guðbjartsdóttur, formanns, Lágmúla 7, 2. hæð, 108 Reykjavík
Samkvæmt tilnefningu Hæstaréttar Íslands
Steinunn Guðbjartsdóttir, hrl., formaður
Ása Ólafsdóttir, hrl., varaformaður
Samkvæmt tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga
Gunnar Eydal, hrl.
Inga Þöll Þórgnýsdóttir, bæjarlögmaður, til vara
Án tilnefningar
Arndís Soffía Sigurðardóttir, hrl.
Valgerður Valdimarsdóttir, lögmaður, til vara
