Samvinnunefnd um málefni norðurslóða
Skipuð 20. ágúst 2008
Hlutverk nefndarinnar er skv. lögum nr. 81/1997, um Stofnun Vilhjálms Stefánssonar, að leitast við að treysta og efla samstarf hlutaðeigandi aðila um rannsóknir á norðurslóðum og málefni Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar, sbr. nánar 2. mgr. 5. gr. áðurnefndar laga og reglugerð nr. 554/2005 um samvinnunefnd um málefni norðurslóða.
Nefndin er skipuð til fjögurra ára í senn og eiga 11 fulltrúar sæti í nefndinni. Tveir skulu skipaðir án tilnefningar, bæði formaður og varaformaður og eftirtaldar stofnanir skulu tilnefna einn fulltrúa hver: Hafrannsóknarstofnun, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Náttúrufræðistofnun Íslands, Rannsóknarráð Íslands, Rannsóknarstofnun landbúnaðarins, Stofnun Vilhjálms Stefánssonar, Umhverfisstofnun og Veðurstofa Íslands.
Án tilnefningar
Þorsteinn Gunnarsson, formaður
Samkvæmt tilnefningu Rannsóknarráðs Íslands
Rikke Pedersen
Samkv. tilnefningu Hafrannsóknastofnunar
Héðinn Valdimarsson
Samkv. tilnefningu Háskólans á Akureyri
Steingrímur Jónsson
Samkvæmt tilnefningu Háskóla Íslands
Þóra Ellen Þórhallsdóttir
Samkvæmt tilnefningu Umhverfisstofnunar
Guðríður Þorvarðardóttir
Samkvæmt tilnefningu Náttúrufræðistofnunar Íslands
Kristinn J. Albertsson
Samkvæmt tilnefningu Landbúnaðarháskóla Íslands
Ingibjörg Svala Jónsdóttir
Samkvæmt tilnefningu Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar
Níels Einarsson
Samkvæmt tilnefningu Veðurstofu Íslands
Þóranna Pálsdóttir
