Úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála
Nefndin var lögð af 1. janúar 2012 skv. 29. gr. laga nr. 131/2011 um breytingu á ýmsum lögum vegna fullgildingar Ársósasamningsins og í stað hennar verður skipuð ný úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Nefndin mun þó starfa skv. ákvæði til bráðabirgða í lögum nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála þar til öllum málum sem nefndin hafði til efnismeðferðar fyrir gildistöku laganna er lokið.
Skipuð 18. október 2009
Úrskurðarnefndin er skipuð til fjögurra ára í senn skv. 8. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum. Nefndin kveður upp úrskurði í ágreiningsmálum um skipulags- og byggingarmál samkvæmt þessum lögum og reglugerðum settum samkvæmt þeim. Jafnframt skal hún kveða upp úrskurði í ágreiningsmálum sem henni er falið að skera úr um á grundvelli laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000, með síðari breytingum.
Í nefndinni eiga sæti fimm menn. Umhverfisráðherra skipar einn nefndarmann án tilnefningar og skal hann vera forstöðumaður úrskurðarnefndar og jafnframt formaður nefndarinnar. Hæstiréttur tilnefnir fjóra nefndarmenn og skal einn þeirra hafa lokið háskólaprófi á sviði skipulagsmála, annar í lögfræði, þriðji á sviði umhverfismála og fjórði á sviði byggingarmála. Varamenn skulu tilnefndir á sama hátt og uppfylla sömu hæfisskilyrði og aðalmenn. Ekki skal þó skipa varamann formanns heldur skal nefndin tilnefna varaformann úr hópi nefndarmanna.
Skrifstofa nefndarinnar er til húsa að Skúlagötu 21, 105 Reykjavík
Meiri upplýsingar er að finna á vef nefndarinnar www.usb.is
Lögskipaður formaður
Hjalti Steinþórsson, formaður
Samkvæmt tilnefningu Hæstaréttar Íslands
Ásgeir Magnússon,
Aðalheiður Jóhannsdóttir, til vara
Þorsteinn Þorsteinsson
Sigurður Erlingsson, til vara
Hildigunnur Haraldsdóttir
Hörður Harðarson, til vara
Geir Oddsson
Helga Jóhanna Bjarnadóttir, til vara
